Matvælastofnun hefur innkallað súkkulaðidrykkjarduft vegna gruns um salmonellu. Stofnunin sendi frá sér tilkynningu eftir að hafa fengið upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu í Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæði.
Fyrirtækið Mamma veit best ákvað að innkalla Raw Meal Chocolate með lotunúmerinu 47226000. Ástæðan var grunur um Salmonellusmit.
Vörurnar hafa verið fjarlægðar úr hillum verslana en þeir neytendur sem hafa keypt Raw Meal Chocolate með lotunúmerinu 47226000 eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila vörunni til verslunarinnar Mamma veit best, Laufbrekku 30 í Kópavogi gegn fullri endurgreiðslu. Í skeyti frá fyrirtækinu segir:
„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að hafa hlotist. Við viljum taka það skýrt fram að aðeins er um grun að ræða.“