Íslenskur klámaðgangur á Snapchat: „Ég er bara kvk sem hefur gaman að nekt“
Þvertekur fyrir að börn séu kúguð - „Hingað koma engin nöfn og engin andlit“
Stofnandi Snapchat-aðgangs, þar sem fylgjendur deila íslenskum nektarmyndum og klámi, þvertekur fyrir að þar sé myndum af einstaklingum undir lögaldri dreift. Þá sé ekki hægt að kúga börn. DV.is fjallaði um aðganginn í gær.
Sjá einnig: Íslenskur klámaðgangur opnar á Snapchat: Deila myndum af nekt og kynlífi
Í umfjöllun DV.is í gær kom fram að á umræddum reikningi, sem allir notendur Snapchat-forritsins geta nálgast, sé að finna fjölmörg myndskeið og myndir af berum Íslendingum, fólki að stunda sjálfsfróun og kynlíf. Þá var bent á að fjölmörg ungmenni hér á landi stundi Snapchat og að reikningurinn væri ekki ósvipaður aðganginum Saurlífi, en þar deildu notendur meðal annars myndum af klámi og fíkniefnaneyslu. Aðganginum var síðar lokað.
Svo virðist vera sem stofnandi aðgangsins hafi séð frétt DV.is því í gærkvöldi birtust skilaboð á Snapchat-aðganginum. Þar sagði stjórnandi meðal annars þetta: „Ég er bara ein kvk sem hefur gaman að nekt“ og „Nei DV þetta er ekki eins og Saurlífi!“
Þá þvertók stjórnandi fyrir það að þarna væri að finna myndir af einstaklingum undir 18 ára. „Hingað koma engin nöfn og engin andlit!“ og „þannig hér gengur enginn kúgað börn!!!!!!“
Í frétt DV.is í gær var vísað í ummæli umboðsmanns barna, Margréti Maríu Sigurðardóttur, sem hefur áhyggjur að börn séu að senda nektarmyndir sín á milli á Snapchat. Margrét sagði í samtali við RÚV, um aðskilt mál, að með þessum sendingum séu krakkarnir jafnvel sjálfir að brjóta lög. Sagði hún mikilvægt að fræða þau um slíkt: „Og þetta fer jafnvel á erlendar síður og lifir þar og maður hefur heyrt um stelpur sem eru að glíma við mjög alvarlegar afleiðingar af þessu og eflaust strákar líka.“
Á nektaraðganginum sem DV fjallaði um í gær er enginn skortur á myndefni. Karlmenn að stunda sjálfsfróun. Munnmök. Kynlíf. Konur að afklæðast og stunda sjálfsfróun svo fátt eitt sé nefnt. Geta þeir sem fylgja aðganginum á Snapchat skoðað þessar myndir eða myndskeið í allt að sólarhring eftir að þau birtast.
Margrét segir að það séu dæmi um að myndir, sem deilt er á Snapchat, séu notaðar til að kúga krakka. „Í mínum huga er þetta bara grafalvarlegt.“
















