fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Endurupptökunefnd hafnar beiðni Ólafs Ólafssonar

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 9. febrúar 2016 11:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það eru Ólafi Ólafssyni og fjölskyldu veruleg vonbrigði að endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni hans um endurupptöku Al Thani málsins. Það er grundvallaratriði þegar einstaklingur er dæmdur í fangelsi að ekki sé ástæða til að véfengja hæfi dómara og að niðurstaðan byggi á réttu mati á gögnum málsins,“ segir í yfirlýsingu frá Ólafi Ólafssyni sem send var fjölmiðlum fyrir hádegi.

Endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni Ólafs um endurupptöku Al Thani-málsins. Það þýðir að fjögurra og hálfs árs fangelsisdómur yfir honum stendur.

Í yfirlýsingunni sem send var í morgun kemur fram að í beiðni Ólafs hafi verið færð ítarleg rök fyrir því að verulegur líkur væru á að í dómi Hæstaréttar hefðu mikilvæg sönnunargögn verið rangt metin. Í dóminum hafði símtal tveggja mann þótt sýna að Ólafur hafi átt að njóta hlutdeildar í hagnaði af Al Thani viðskiptunum og að honum hafi verið það kunnugt.

„Þeir menn sem þar ræddu saman voru þar hins vegar að vísa til annars Ólafs, sem kom að málinu sem ráðgjafi, og voru þær ályktanir sem dregnar af samtalinu því rangar. Það hafði veigamikil áhrif á niðurstöðu Hæstaréttar sem sakfelldi Ólaf fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun. Engin gögn hafa komið fram, hvorki fyrr né síðar, sem sýna að sakfelling hafi byggst á fleiri atriðum,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá hafi Ólafur sýnt fram á að í dóminum sátu dómarar sem að hans mati voru vanhæfir vegna tengsla ættingja þeirra við slitastjórn Kaupþings, sem hafði átt mikla hagsmuni af því að sakfellt yrði í málinu. „Með skipan þeirra brutu dómstólar á þeim grundvallarrétti sakborninga að fá leyst úr máli sínu fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstóli.“

Að mati Ólafs er rökstuðningur endurupptökunefndar fyrir niðurstöðu sinni ófullnægjandi. Þannig geri nefndin ekki fullnægjandi greinarmun á því um hvaða Ólaf viðskiptin snúast og við hvaða Ólaf sá sem talar kveðst hafa rætt. „Slíkur vafi er uppi um hvort mat Hæstaréttar á efni símtalsins er rétt að nefndinni hefði borið að fallast á beiðni um endurupptöku til þess að úr því yrði skorið.“ Beiðni hans um endurupptöku sé hafnað þrátt fyrir, að mati Ólafs, að verulegar líkur væru á að umrædd sönnunargögn hefðu verið rangt metin þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu málsins.

„Niðurstaða endurupptökunefndar veldur verulegum vonbrigðum, ekki hvað síst í því ljósi að sá sem átti símtalið staðfesti í bréfi til nefndarinnar, sem og fyrir dómi, að hann myndi ekki til þess að hafa rætt við Ólaf Ólafsson um viðskiptin, heldur annan mann með sama nafni. Þá yfirlýsingu segir nefndin engu breyta,“ segir í yfirlýsingunni og því bætt við að verjendur hefðu ekki haft tækifæri til þess að leiðrétta þessa röngu ályktun Hæstaréttar. Símtalið hafi ekki verið tekið til efnislegrar meðferðar í málflutningnum eða því haldið fram af ákæruvaldi að skilja bæri það á þann veg sem Hæstiréttur gerði. „Fyrirliggjandi gögn bentu ekki til þess að vafi ríkti um þetta atriði heldur þvert á móti og ekkert gaf til kynna að dómararnir skildu efni símtalsins með öðrum hætti en héraðsdómur, ákæruvald, verjendur og ákærðu.“

Þá kemur fram að endurupptökunefnd hafi staðfest í úrskurði sínum að Kaupþing hf. kynni að hafa haft fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðu Al-Thani málsins. Hins vegar sé ekki unnt að fallast á að hagsmunir núverandi og fyrrverandi yfirmanna bankans, sem jafnframt eru synir tveggja hæstaréttardómara sem dæmdu í málinu, verði lagðir að jöfnu við mögulega fjárhagslega hagsmuni slitabúsins af niðurstöðu málsins. Sýna verði fram á að þeir hafi eða muni hafa sérstaka hagsmuni af úrlausn málsins að valdið geti vanhæfi dómaranna.

„Endurupptökunefnd segir engu breyta þótt í DV 27.-28. maí 2015 sé fullyrt að núverandi og fyrrverandi starfsmenn slitabús Kaupþings eigi í vændum háar fjárhæðir í kaupauka vegna nauðasamninga við kröfuhafa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat