Hún segir stöðuna innan Samfylkingarinnar óásættanlega, enda óhætt að fullyrða að flokkurinn sé draghaltur eftir síðustu kosningar þar sem hann snarféll í fylgi og hefur aðeins lækkað síðan, sé litið til skoðanakannanna.
Katrín Júlíusdóttir segir það ekki endilega lausnina fyrir Samfylkinguna að skipta um formann til þess að hífa upp slakt gengi í skoðanakönnunum undanfarið. Þetta kemur fram í Föstudagsviðtali Fréttablaðsins.
Þar var hún spurð: Þú talar um að Samfylkingin nái ekki að miðla hugmyndum sínum. Þarf að skipta um mann í brúnni?
„Það eru margir sem halda að það sé svo. Ég held að það sé ekki stóra málið. Ég held að þó að komi nýr formaður núna verði ekki sú kúvending sem margir halda. Þetta snýst um svo margt. Það er bara þannig að sumir formenn fiska og aðrir ekki. Sumir fiska við þessar aðstæður en illa við aðrar, þetta fer allt eftir aðstæðum og umhverfi. Við erum líka bara í stöðu þar sem mér sýnist flestir flokkar vera í vanda, þessir flokkar sem hafa verið á sviðinu í einhvern tíma.“
Hún segir stöðuna innan Samfylkingarinnar óásættanlega, enda óhætt að fullyrða að flokkurinn sé draghaltur eftir síðustu kosningar þar sem hann snarféll í fylgi og hefur aðeins lækkað síðan, sé litið til skoðanakannanna.
„Það er ólga í flokknum og það er skiljanlegt að flokksmenn rísi upp og geri kröfu um breytingar. Fyrir jafnaðarmannahreyfingu eins og okkar, sem var stofnuð sem sameinandi afl til að hrista upp í kerfinu er staðan algjörlega óásættanleg. Við þurfum að skoða vandlega hvað við eigum að gera, hvernig við komum okkar hugmyndum á framfæri og hvort við þurfum ekki að fara að finna ný verkfæri til að koma þeim áleiðis. Þetta er eitthvað sem ég held að pólitík þurfi almennt að horfast í augu við.“