fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Nauðgunarkærur í Hlíðarmáli felldar að hluta til niður

Mikil reiði myndaðist í samfélaginu vegna málsins

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. febrúar 2016 12:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál tveggja manna sem voru kærðir fyrir nauðgun sem átti að hafa átt sér stað í Hlíðunum í október á síðasta ári. Þetta staðfestir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson í samtali við RÚV.

Málið vakti mikla reiði í samfélaginu eftir að Fréttablaðið birti frétt um það íbúðin, þar sem kynferðisofbeldið átti að hafa átt sér stað, hafi verið útbúin til nauðgana. Þá kom fram að ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum vegna málsins, sem leiddi af sér mótmæli fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu.

Á RÚV segir svo að þrjár aðrar kærur tengjast þessu máli – til að mynda er nauðgunarkæra gegn öðrum manninum enn til meðferðar hjá héraðssaksóknara. Þá lagði verjandi mannanna fram kærur gegn konunum tveimur – meðal annars fyrir rangar sakargiftir.

Ekki náðist í Vilhjálm við vinnslu fréttarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi