fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Erum við hætt að vera Charlie? – Varaborgarfulltrúi varar við grínlasti

Hildur Sverrisdóttir kemur Sigmundi Davíð og umdeildu gríni hans til varnar.

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. febrúar 2016 09:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, veltir fyrir sér hörðum viðbrögðum við snapchat-mynd sem Sigmundur Davíð Gunnlaugson birti í vikunni og uppskar mikla hneykslun.

Sjá einnig frétt Stundarinnar: „Forsætisráðherra gerir grín að bágu ástandi raflagna í flóttamannabúðum“

Þá svaraði forsætisráðherrann gagnrýninni sjálfur á Snapchat eins og lesa má hér.

Hildur skrifar í pistil sinn: „Forsætisráðherra reyndi að vera fyndinn. Margir urðu honum reiðir fyrir að gantast með fátæklegar aðstæður í flóttamannabúðum sem hann heimsótti. Ekki ætla ég að gera grín forsætisráðherra að mínu. Ég hefði eflaust ekki valið að senda þessi skilaboð úr þessum aðstæðum (alveg eins og ég hefði ekki valið að vera þar í jakkafötum). En þetta glens hans sem slíkt átti samt alveg rétt á sér. Og það verður að fá að eiga rétt á sér.“
Hún segir að það sé svo annað mál að hafa á því skoðun hversu fyndið grínið var.

„Við getum einfaldlega tekið ákvörðun um að allt grín sé sjálfsagt tjáningarfrelsi sama hvert efnið eða grínarinn er. Það er einföld og skynsamleg ákvörðun. Því við getum væntanlega öll verið sammála um að 1984 er afskaplega ógnvekjandi bók. Og fyndin er hún ekki.“
Hildur Sverrisdóttir „Við getum einfaldlega tekið ákvörðun um að allt grín sé sjálfsagt tjáningarfrelsi sama hvert efnið eða grínarinn er. Það er einföld og skynsamleg ákvörðun. Því við getum væntanlega öll verið sammála um að 1984 er afskaplega ógnvekjandi bók. Og fyndin er hún ekki.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hún bendir á að það sé ekki ýkja langt síðan flokkur sem lofaði „allskonar fyrir aumingja“ hafi unnið stórsigur í borginni. Þá sé enn styttra síðan annar hver maður „var Charlie“ því allt grín átti að fá að vera án óttablandinnar kúgunar.

„Samt get ég í fljótu bragði rifjað upp allavega þrjú atvik síðan þá þar sem allt hefur farið hér á hliðina út af gríni sem var fordæmt grimmilega fyrir að hafa gengið of langt. Erum við sem sagt hætt við að vera Charlie? Sama dag og forsætisráðherra reyndi að vera fyndinn sá ég viðtal við John Cleese þar sem hann sagði að pólitískur rétttrúnaður væri farinn frá því að vera góð hugmynd yfir í að ganga af gríni dauðu. Hann klykkti út með að viðmiðin væru farin að minna ískyggilega á hinn kúgaða heim í sögusviði bókarinnar 1984. Ef við viljum ekki að Cleese hafi rétt fyrir sér höfum við blessunarlega alla burði til að afstýra því,“ skrifar Hildur og bætir við að lokum:

„Við getum einfaldlega tekið ákvörðun um að allt grín sé sjálfsagt tjáningarfrelsi sama hvert efnið eða grínarinn er. Það er einföld og skynsamleg ákvörðun. Því við getum væntanlega öll verið sammála um að 1984 er afskaplega ógnvekjandi bók. Og fyndin er hún ekki.“

Hægt er að lesa bakþankana á baki Fréttablaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga