Árni Páll og Össur búnir að skemma fyrir vinstri mönnum, segir Brynjar
„Nú held ég að Árni Páll og Össur séu búnir að eyðileggja það að vinstri flokkarnir geti gert meinta spillingu og undirferli stjórnarflokkanna að helsta kosningamáli fyrir næstu kosningar eins og til stóð,“ skrifar Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á Facebook síðu sína.
Brynjar fjallar þar um umtalað bréf Árna Páls Árnasonar til flokksmanna sinna, þar sem meðal annars mátti finna harða gagnrýni á verk vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Brynjar segir hins vegar fátt í bréfinu sem menn vissu ekki fyrir, enda hafi flest komið fram í bók Össurar Skarphéðinssonar, Ár drekans.
„Í hvert sinn sem vitnað var í þessa ágætu bók risu þingmenn vinstri flokkana upp á afturfæturna en nú vita þeir ekki í hvorn fótinn á að stíga,“ segir Brynjar sem heldur því fram að þeir Árni Páll og Össur hafi eyðilagt þann möguleika vinstri flokkanna að gera meinta spillingu og undirferli stjórnarflokkanna að kosningamáli.
„ En stærsti sannleikurinn í máli Árna Páls í morgun var að Samfylkingin er orðin venjulegur vinstri kredduflokkur og verður því ekki breiðfylking jafnaðarmanna eins og tíðkast víða annars staðar.“