Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af árshátíð á hóteli í miðborginni í nótt, en þar hafði ölvaður maður skallað dyravörð í andlitið. Hann var handtekinn og endaði hann gleðina í fangageymslu lögreglunnar.
Í Hafnarfirði hafði lögreglan afskipti af ungmennum við kirkjugarða Hafnarfjarðar vegna neyslu fíkniefna og var einn þeirra kærður fyrir vörslu efnanna.
Þá var bifreið ekið á ungan mann á Fífuhvammsvegi, en maðurinn hafði verið þar á göngu ásamt fleirum. Þrátt fyrir að finna til eymsla vildi maðurinn ekki fara með sjúkrabifreið á slysadeild, heldur sagðist hann ætla þangað síðar.
Nóttin var að öðru leyti róleg hjá lögreglunni.