Fær milljónir króna í bætur frá ríkinu
Hin 33 ára gamla Cheryl Prudham, sem kölluð hefur verið ósvífnasta móðir Bretlands, hefur vísað eiginmanninum Rob á dyr eftir að hún fann nektarmyndir af annarri konu í símanum hans. Komst hún þá að því að Rob hefði átt í ástarsambandi við konu sem hann kynnist á öldurhúsinu þar sem hann starfar og hafi farið í trekant með henni og frænda sínum í september síðastliðnum. Heimildarmaður breska götublaðsins Daily Star sagði: „Cheryl er miður sín. Það er eitt að frétta af framhjáhaldi en það er enn verra þegar það er með fjölskyldumeðlim.“
Cheryl vakti mikla athygli í Bretlandi nýverið eftir að dagblaðið The Sun greindi frá því að hún fengi ríflega 7,4 milljónir íslenskra króna í bætur frá ríkinu árlega ásamt því að starfa sem pizzasendill. Þegar blaðmann The Sun bar að garði jós hún yfir hann blótsyrðum og sagði honum að snáfa á brott.
„Cheryl henti honum út og vill ekkert meira með hann hafa,“ sagði heimildarmaður Daily Star sem bætti við að vinir hennar gruni Rob um að hafa áður haldið framhjá henni. „Hún vill bara skapa þægilegt líf fyrir sig og börnin sín, en hún vill frekar gera það sjálf en með einhverjum sem lætur svona.“