Stolt og þakklát dóttur sinni
„Þessi er búin að bjarga lífi móður sinnar, svo hún er bara hetjan mín,“ segir Margrét Sæberg Þórðardóttir móðir hinnar sjö ára gömlu KarenarSæberg Guðmundsdóttur en Karen bjargaði lífi móður sinnar þann 8.ágúst árið 2015 eftir að Margrét fékk flog og missti meðvitund í heitum potti. Karen var í dag sæmd titlinum Skyndihjálparmaður ársins af Rauða krossi Íslands.
Í samtali við mbl.is segir Margrét að þær mæðgur hafi verið heita pottinum þennan dag ásamt Júlíusi fimm ára nágranna þeirra. „Svo var verið að leika og voða gaman. Ég er með flogaveiki og fæ flog í pottinum og get því ekkert gert. Sem betur fer tekur hún eftir því að ég er komin með vatnið upp að vörum og nær að halda undir höfuðið á mér og halda því uppi.“
„Svo kallar hún á vin sinn og biður hann að fara inn. Hann fer þegar hún er búiin að biðja hann nokkrum sinnum um að fara inn. Maðurinn minn kemur út og tekur við höfðinu á mér og svo var mér dröslað upp úr,“ segir Margrét og bætir við að DVD diskurinn um Hjálpfús hafi kennt dóttur sinni réttu viðbrögðin.
„Ég gaf henni líf og hún gaf mér annað líf. Þetta minnir mann á það að það geta allir bjargað. Ef þú hefur lært eitthvað þá getur þú það og þú getur það þó þú sért bara sex ára,“ segir Margrét jafnframt í samtali við kvöldfréttir RÚV.