Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn 4. júní næstkomandi. Formannskjör mun fara fram áður en að fundinum kemur, með allsherjaratkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram á Eyjunni.
Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar nú fyrir skemmstu. Legið hefur í loftinu að formannskjör muni fara fram í vor en ekki var ljóst hvort hægt yrði, vegna samþykkta flokksins, að flýta landsfundinum.
Úr því hefur nú verið skorið og umrædd ákvörðun tekin.
Staða Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum hefur verið afleit að undanförnu og í nýjasta þjóðarpúsli Gallup mældist flokkurinn með 9,2 prósenta stuðning.
Flokkurinn hefur aldrei mælst lægri. Árni Páll Árnason, sem kjörinn var formaður á síðasta landsfundi með eins atkvæðis mun, hefur legið undir ámæli og gagnrýni og honum að hluta verið kennt um lítinn stuðning við flokkinn.
Hann hefur sjálfur sagt að þörf sé á að formaður Samfylkingarinnar fái nýtt og endurnýjað umboð. Hann hefur ekki gefið annað út en að hann muni fara fram að nýju.