Mennirnir þrír sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á þriðjudag, grunaðir um nauðgun og frelsissviptingu, voru leystir úr haldi í gær.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Konan tilkynnti um atvikið síðastliðinn mánudag.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, staðfestir að rannsóknarhagsmunir hafi ekki verið lengur til staðar og því hafi mönnunum verið sleppt. Hann segir jafnframt að rannsókn málsins miði vel áfram.