fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Dæmdu stjórnendur banka sem þeir töpuðu milljónum á

Hæstaréttardómararnir Viðar og Eiríkur áttu um tíma samanlagt 23 milljónir í Landsbankanum en töpuðu öllu – Dæmdu í markaðsmisnotkunarmáli bankans – „Tel að þetta valdi ekki vanhæfi mínu“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. desember 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Eiríkur Tómasson áttu hluti í Landsbanka Íslands við fall bankans 3. október árið 2008 og nam samanlagt tap þeirra vegna hlutabréfaeignarinnar á þeim degi rúmlega ellefu milljónum króna. Þegar gengi bréfa í Landsbankanum stóð hvað hæst, um miðjan októbermánuð 2007, nam markaðsvirði hlutabréfanna hins vegar um 23 milljónum króna. Eiríkur og Viðar Már, sem er jafnframt varaforseti Hæstaréttar, skipuðu báðir fimm manna dóm Hæstaréttar sem dæmdi ýmsa fyrrverandi stjórnendur og starfsmenn Landsbankans seka um markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik í tveimur málum fyrir Hæstarétti í október 2015 og febrúar 2016. Á meðal þeirra sem hlutu dóm var Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, en hann var dæmdur í samtals fimm ára fangelsi.

Í samtali við DV segist Eiríkur ekki telja að hlutafjáreign hans í Landsbankanum, sem var metin á 1,7 milljónir við fall bankans, hafi valdið vanhæfi hans í þeim málum sem beindust að stjórnendum bankans. „Ég tel að þetta valdi ekki vanhæfi mínu í málum af þessu tagi. Þetta var það lítilfjörleg fjárhæð og það voru margir sem töpuðu fjármunum við fall bankanna og ég var einn þeirra og í sporum margra. Ég ber engan sérstakan hug til forystumanna þessa banka frekar en annarra vegna þessa. Ég hef enga ástæðu til þess.“ Eiríkur tekur hins vegar fram að „ef þetta hefði verið há fjárhæð, numið kannski tugum milljóna sem ég hefði tapað þarna, þá hefði gegnt öðru máli.“

Eiríkur átti líka í Glitni

Hlutabréfaeign Viðars Más í Landsbankanum var umtalsvert meiri en Eiríks. Þannig nam virði bréfa í hans eigu rúmlega nítján milljónum króna um ári fyrir fall bankans, samkvæmt gögnum sem eru unnin upp úr hluthafalistum Landsbankans og DV hefur undir höndum, en Eiríkur átti hins vegar bréf fyrir um 3,8 milljónir króna á sama tíma. Verðmæti hlutabréfanna lækkaði mikið á árinu 2008 og urðu þau sem kunnugt er verðlaus við gjaldþrot Landsbankans í byrjun október sama ár. Daginn sem bankinn óskaði eftir gjaldþrotaskiptum nam markaðsvirði bréfa Viðars Más rúmlega 9,4 milljónum króna en hlutur Eiríks var sem fyrr segir metinn á um 1,7 milljónir króna.

DV skildi einnig eftir skilaboð til Viðars þar sem óskað var eftir viðtali um hlutabréfaeign hans. Þeim skilaboðum var ekki svarað.

Viðar Már og Eiríkur voru ekki dómarar við Hæstarétt samtímis því að þeir áttu hlutabréf í Landsbankanum. Viðar var skipaður dómari við Hæstarétt 2010 en Eiríkur um ári síðar. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að Eiríkur hafi einnig verið hluthafi í Glitni á árunum 2007 og 2008. Þannig nam markaðsvirði bréfa sem hann átti í bankanum tæplega níu milljónum króna í júlí árið 2007. Bréfin urðu verðlaus þegar bankinn féll haustið 2008. Eiríkur hefur hins vegar vikið sæti í svonefndum hrunmálum sem tengjast falli Glitnis eftir að hann var skipaður dómari við Hæstarétt þar sem sonur hans, Páll Eiríksson, sat í slitastjórn bankans á árunum 2009 til 2015.

Ef þetta hefði verið há fjárhæð, numið kannski tugum milljóna sem ég hefði tapað þarna, þá hefði gegnt öðru máli.

„Þetta var það lág fjárhæð“

Það er undir dómurunum sjálfum komið að gæta að hæfi sínu í þeim málum sem koma fyrir Hæstarétt. Þrátt fyrir að hafa tapað talsverðum fjármunum sem beinir hluthafar í Landsbankanum, þá fyrst og fremst í tilfelli Viðars Más, þá töldu þeir Eiríkur og Viðar Már sig engu að síður ekki vanhæfa til að dæma í málum sem vörðuðu umboðssvik og umfangsmikla markaðsmisnotkun stjórnenda og starfsmanna þess sama banka. Í niðurstöðu Hæstaréttar í Ímon-málinu svokallaða í október 2015, sem var annað af tveimur markaðsmisnotkunarmálum sem voru höfðuð á hendur stjórnendum Landsbankans, sagði meðal annars að brotin hefðu beinst „í senn að öllum almenningi og fjármálamarkaðinum hér á landi og verður tjónið, sem af þeim hlaust, ekki tekið til fjár.“ Á meðal þeirra sem voru dæmd til fangelsisvistar voru Sigurjón Þ. Árnason og Elín Sigfúsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans, en þau höfðu áður verið sýknuð í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Eiríkur bendir á að ef einhver önnur atriði hafi komið til, sem kunna að draga í efa hæfi hans, þá hafi hann vikið sæti í þeim málum sem gömlu bankarnir hafa átt í hlut en í þessu tilfelli hafi hann ekki talið ástæðu til þess. „Þetta var það lág fjárhæð, að minnsta kosti miðað við mín fjármál, þótt manni sé auðvitað sárt að tapa þá voru þetta hlutabréf sem ég hafði keypt fyrir mörgum árum og átt lengi. Þau höfðu ýmist hækkað eða lækkað í verði eins og gengur. Ef maður væri vanhæfur í þessum málum þá væri maður vanhæfur í mörgum málum því maður hefur auðvitað átt viðskipti víðs vegar í samfélaginu. Maður getur tapað svona lágum fjármunum í viðskiptum og það hefur maður gert í gegnum tíðina með því að kaupa gallaða vöru eða eitthvað slíkt. Það gerir mann ekki vanhæfan en ef að fjármunirnir eru mjög miklir, þannig að þetta hafi veruleg áhrif á fjárhag manns og afkomu, þá gegnir auðvitað öðru máli.“

Spurning um ásýnd dómsins

Í frétt Stöðvar 2 síðastliðinn þriðjudag kom fram í máli Ragnars H. Hall hæstaréttarlögmanns, í tengslum við umfjöllun um hlutabréfaeign og viðskipti Markúsar Sigurbjörnssonar hæstaréttardómara við Glitni, að sérstök hæfisregla laganna lyti að því hver ásýnd dómsins væri gagnvart sakborningum og hvort þeir hafi réttmæta ástæðu til að draga óhlutdrægni dómara í efa. „Dómari á ekki að sitja í máli ef það er minnsti vafi um það að hann fái litið óhlutdrægt á málavexti út frá því sem gerst hafði í fortíðinni. Ég tala nú ekki um ef þau atvik urðu í beinum tengslum við það sem er síðan ákært fyrir,“ sagði Ragnar Hall. Rétt er að taka fram að Ragnar Hall var verjandi Ólafs Ólafssonar, eins aðaleigenda Kaupþings á árunum fyrir fall bankans, í Al Thani-málinu svonefnda en hann sagði sig frá því í apríl 2013.

Þrátt fyrir að Markús hafi ekki verið hluthafi í Landsbankanum þá áttu þrjú börn hans, sem á þeim tíma voru ófjárráða, hluti í bankanum á árunum 2007 og 2008. Samkvæmt þeim gögnum sem DV hefur undir höndum nam samanlagt markaðsvirði hlutabréfanna um 1,9 milljónum króna þegar gengi bréfa Landsbankans stóð hæst 17. október árið 2007. Daginn sem bankinn féll tæplega ári síðar – og bréfin urðu þá um leið verðlaus – var hlutur þeirra aðeins metinn á liðlega 900 þúsund krónur. Rétt eins og Eiríkur og Viðar Már þá var Markús í fimm manna dómi Hæstaréttar sem dæmdi í markaðsmisnotkunarmálum Landsbankans.

Fimm ára fangelsi Sigurjón Þ. Árnason

Sneri við sýknudómi héraðsdóms

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var dæmdur í samtals fimm ára fangelsi í Hæstarétti í tveimur markaðsmisnotkunarmálum sem var í skipt í tvennt í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní 2013. Annars vegar var hann í október 2015 fundinn sekur um umboðssvik og markaðsmisnotkun í Ímon-málinu svokallaða og dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, var þá dæmd í 18 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik og hlutdeild í markaðsmisnotkun og Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar bankans, í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir markaðsmisnotkun. Hæstiréttur sneri í málinu sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Elínu og Sigurjóni.

Hins vegar var Sigurjón dæmdur í Hæstarétti í byrjun febrúar 2016 í eins og hálfs árs fangelsi í stóra markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans. Hæstiréttur þyngdi þá dóm héraðsdóms yfir honum og þremur öðrum fyrrverandi starfsmönnum bankans; Ívar Guðjónssyni, fyrrverandi forstöðumanni eigin fjárfestinga Landsbankans, og Júlíusi S. Heiðarssyni og Sindra Sveinssyni, fyrrverandi starfsmanni sömu deildar innan bankans. Dómurinn yfir Sigurjóni var þyngdur um hálft ár en hann hafði verið dæmdur í héraðsdómi í tólf mánaða fangelsi, þar af níu skilorðsbundna. Ívar og Júlíus voru dæmdir í níu mánaða fangelsi í héraði, þar af sex skilorðsbundna, en Sindri sýknaður. Hæstiréttur dæmdi Ívar aftur á móti í tveggja ára fangelsi en Júlíus og Sindri hlutu eins árs dóma. Mennirnir fjórir voru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun á tímabilinu 1. nóvember 2007 til 3. október 2008. Þeir voru fundnir sekir um að hafa handstýrt verðmyndun hlutabréfa í Landsbankanum sem hafi „falið í sér blekkingu og sýndarmennsku“.

Setti 60 milljónir í fjárfestingarsjóð

Í umfjöllun Kastljóss og Stöðvar 2 fyrr í vikunni var upplýst um að Markús, sem hefur verið forseti Hæstaréttar frá árinu 2007, hafi verið hluthafi í Glitni á árunum fyrir fall bankans. Markús seldi hins vegar alla hluti sína í bankanum árið 2007 fyrir 44,6 milljónir króna með umtalsverðum söluhagnaði en hann hafði upphaflega eignast hlutabréfin fimm árum áður. Hagnaðinn af sölu bréfanna, auk annarra fjármuna, setti hann í eignastýringu hjá Glitni, samtals um 60 milljónir króna. Fram kom í Kastljósi að þeir peningar hefðu farið í hlutdeildarskírteini í Sjóði 9, eða um 52 milljónir króna, en afgangurinn í Sjóð 10 hjá bankanum. Sjóðirnir fjárfestu í ýmsum hlutabréfum og skuldabréfum, einkum og sér lagi í félögum sem tengdust Glitni og eigendum bankans. Skömmu fyrir þjóðnýtingu Glitnis í lok september 2008 innleysti Markús samtals um 15 milljónir úr Sjóðum bankans en sat eftir með um 44 milljónir. Sé tekið mið af upplýsingum um útgreiðsluhlutfall fjárfestingarsjóðanna má áætla að tap hans hafi verið um 7 til 10 milljónir.

Ef dómarar eiga hlut í félagi sem er allt þriggja milljóna króna virði, eða sem nemur yfir fimm prósentum af eignarhlut í félagi, þá er þeim lögum samkvæmt skylt að tilkynna um þá eign til sérstakrar nefndar um dómarastörf. Ef eignarhluturinn er aftur á móti meira virði en þrjár milljónir þurfa dómarar jafnframt að fá heimild nefndarinnar fyrir slíkri fjárfestingu. Í yfirlýsingu sem Markús sendi frá sér eftir umfjöllun Kastljóss kom fram að hann hefði tilkynnt nefndinni um eignarhlut sinn í Glitni og óskað eftir um heimild fyrir fjárfestingunni – og sömuleiðis upplýst nefndina þegar hann seldi bréfin árið 2007. Hann sagðist hins vegar ekki hafa talið sér skylt að upplýsa um þá fjármuni sem hann hefði sett í fjárfestingarsjóði sem voru í eignastýringu Glitnis.

Markús var á meðal dómara Hæstaréttar sem dæmdu ýmsa fyrrverandi starfsmenn Glitnis í fangelsi í BK-44 málinu svonefnda í desember 2015. Á meðal þeirra sem Hæstiréttur dæmdi seka í því máli voru Jóhannes Baldursson og Birkir Kristinsson, sem hlutu þriggja og fjögurra ára fangelsi, en þeir voru báðir starfsmenn þeirrar deildar Glitnir sem sá um stýringu þeirra sjóða sem Markús hafði fjárfest í. Í fyrrnefndri yfirlýsingu sem Markús sendi frá sér síðastliðinn þriðjudag sagði hann að dómara beri að eigin frumkvæði að gæta að hæfi sínu í sérhverju máli sem hann dæmi í. „Það hef ég ávallt gert, þar á meðal í málum sem varðað hafa Glitni banka hf. eða fyrrverandi starfsmenn hans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus