Lögmenn þeirra Gísla Reynissonar og Markúsar Mána Mikaelssonar Maute hafa kært æðstu embættismenn Seðlabankans fyrir rangar sakargiftir. Mennirnir voru ákærðir í Aserta-málinu svokallaða. Þetta kemur fram í bók Gjaldeyriseftirlitið, bók Björns Jóns Bragasonar. Morgunblaðið greinir frá.
Í kærunum mun aðallega verið kallað eftir rannsókn á framgöngu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra, Sigríðar Logadóttur aðallögfræðings og Ingibjargar Guðbjartsdóttur forstöðumanns gjaldeyriseftirlits bankans.
Toppar bankans hafa í nógu að snúast. Í síðasta mánuði kærði forstjóri Samherja þau Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóra og Ingibjörgu Guðbjartsdóttur fyrir rangar sakargiftir.