Elleftu alþjóðlegu verðlunin sem myndin hlýtur
Eva Sigurðardóttir var nýlega valin besti leikstjórinn fyrir stuttmynd sína Regnbogapartý á Underwire hátíðinni í Bretlandi Myndin hefur unnið til 11 alþjóðlegra verðlauna, en hún var einnig valin stuttmynd ársins á Eddunni 2016 sem og besta stuttmyndin á RIFF 2015.
Myndin fjallar um 14 ára stelpu sem er lögð í einelti en þráir ekkert heitar en að falla í hópinn. Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni: