Fangi á Litla-Hrauni var á mánudag sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands af ákæru um að hafa áreitt samfanga sinn kynferðislega. Maðurinn var sakaður um óviðeigandi og kynferðislegar snertingar og kynferðislegt og ósiðlegt orðbragð. Hann sagði að um „Litla-Hrauns djók“ hafi verið að ræða en ríkissaksóknari höfðaði málið.