Í nýrri könnun 365 um stuðning við flokka ef kosið yrði til borgarstjórnar sem birt var í gær, mánudag, vekur athygli að fylgi Viðreisnar er vart mælanlegt. Í niðurstöðum könnunarinnar er greint frá fylgi flokkanna sex sem sæti eiga í borgarstjórn og auk þess að Dögun mælist með 1,8 prósent stuðning. Aðrir flokkar fá samanlagt 2,1 prósent fylgi og má gera ráð fyrir að Viðreisn sé þar á meðal. Viðreisn hlaut 10,4 prósenta fylgi í síðustu þingkosningum og hefur það á stefnuskrá sinni að bjóða fram til sveitarstjórna.