fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Stórir hluthafar í VÍS kaupa 15 prósent í Kviku

Fyrrverandi eigendur Skeljungs og Sigurður Bollason fjárfesta í bankanum fyrir samanlagt milljarð

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. desember 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir af stærstu hluthöfum tryggingafélagsins VÍS hafa eignast um fimmtán prósenta hlut í fjárfestingarbankanum Kviku og nemur kaupverðið samtals um einum milljarði króna. Hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, sem seldu Skeljung með milljarða hagnaði í árslok 2013, keyptu átta prósenta hlut í bankanum í síðustu viku á meðan Sigurður Bollason, umsvifamikill fjárfestir í íslensku viðskiptalífi á árunum fyrir bankahrun, keypti um sjö prósenta hlut. Kaup þeirra voru gerð nokkrum dögum áður en tilkynnt var um það síðastliðinn mánudag að stjórnir Kviku og Virðingar hefðu undirritað viljayfirlýsingu um að hefja undirbúning að samruna félaganna.

Guðmundur Örn staðfestir í samtali við DV að félag í eigu þeirra hjóna hafi fjárfest í Kviku. Hann segir bankann afar vel rekinn, sem hafi sýnt sig í góðri afkomu það sem af er þessu ári, en telur að það séu engu að síður tækifæri í frekari samruna fjármálafyrirtækja á markaði. Þau Guðmundur og Svanhildur eru á meðal stærstu einkafjárfesta í hluthafahópi VÍS með um átta prósenta eignarhlut í gegnum félagið K2B fjárfestingar ehf. og í hlutabréfasjóðum í stýringu Stefnis.

Sigurður Bollason á sömuleiðis ríflega átta prósenta hlut í tryggingafélaginu ásamt Don McCarthy, breskum fjárfesti og fyrrverandi stjórnarformanni House of Fraser, í gegnum eignarhaldsfélagið Grandier. Þá á félagið Grandier S.A. í Lúxemborg, sem er í eigu Sigurðar, jafnframt tæplega níu prósenta hlut í fjölmiðlafyrirtækinu 365. Sigurður kom að fjárfestingum í ýmsum verkefnum sem tengdust Baugi á sínum tíma og átti meðal annars sæti í stjórn FL Group. Sumarið 2008 fjárfesti Sigurður einnig í Exista, Glitni og Landsbankanum fyrir milljarða króna.

Yfir bókfærðu eigið fé

Ekki fást staðfestar upplýsingar um alla þá hluthafa sem seldu bréf sín í Kviku til félags hjónanna og Sigurðar. Á meðal seljenda voru hins vegar, samkvæmt heimildum DV, eignaumsýslufélagið Klakki sem átti 3,12 prósenta hlut í Kviku auk þess sem ýmsir fyrrverandi starfsmenn Straums fjárfestingabanka, sem sameinaðist MP banka undir nafninu Kvika sumarið 2015, seldu bréf sín í bankanum. Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ), sem á 3,18 prósenta hlut í Kviku, var aftur á móti ekki í hópi þeirra hluthafa sem seldu en búist er við því að félagið muni á næstu vikum auglýsa eignarhlut sinn í bankanum til sölu.

Kaupverðið á bréfunum í Kviku er á genginu rúmlega einn miðað við áætlað eigið fé bankans í árslok 2016, samkvæmt upplýsingum DV. Í lok septembermánaðar nam eigið fé Kviku tæplega 6,2 milljörðum króna en gert er ráð fyrir að það verði í kringum 6,6 milljarðar í lok þessa árs í samræmi við áætlaðan hagnað bankans á fjórða ársfjórðungi. Kvika sendi frá sér jákvæða afkomuviðvörun 20. október síðastliðinn þar sem fram kom að hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins hefði numið samtals 1.032 milljónum króna. Þá sagði að horfur væru á að afkoma ársins í heild yrði „umtalsvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.“

Hafa talað fyrir sameiningu VÍS og Kviku

Hafa talað fyrir sameiningu VÍS og Kviku

Á undanförnum mánuðum hefur það komið til tals hjá VÍS, ekki síst í röðum sumra af stærstu hluthöfum félagsins, hvort tryggingafélagið ætti að gera tilboð í Kviku með sameiningu fjármálafyrirtækjanna í huga. Þau sem hafa talað hvað mest fyrir þeirri hugmynd innan hluthafahóps VÍS eru hjónin Svanhildur og Guðmundur ásamt Sigurði Bollasyni fjárfesti. Félög á þeirra vegum hafa núna samanlagt tryggt sér um fimmtán prósenta eignarhlut í Kviku banka.

Ávinningur af sameiningu VÍS og Kviku myndi einkum liggja í þeim samlegðaráhrifum sem gætu náðst fram á sviði eignarstýringarstarfsemi félaganna. Framkvæmdastjóri eignarstýringar Kviku er Sigurður Hannesson en eins og DV upplýsti um 2. september fyrr á þessu ári þá stóð valið á milli hans og Jakobs Sigurðarsonar um að taka við sem forstjóri VÍS eftir að stjórn félagsins tók ákvörðun um að segja Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur upp störfum í lok ágústmánaðar. Á meðal hluthafa höfðu ýmsir stærstu einkafjárfestar félagsins komið því á framfæri við stjórnarmenn VÍS að þeir styddu Sigurð í stól forstjóra. Stjórn VÍS ákvað hins vegar sem kunnugt er að ráða Jakob sem forstjóra félagsins.

Með 220 milljarða í stýringu

Í aðdraganda fyrirhugaðrar sameiningar Kviku og verðbréfafyrirtækisins Virðingar stendur til að lækka eigið fé Kviku um 600 milljónir og greiða þá fjármuni út til hluthafa bankans. Eftir samruna félaganna munu hluthafar Kviku eiga 70 prósenta hlut í sameinuðu félagi en hluthafar Virðingar 30 prósent. Fram kom í tilkynningu fyrr í vikunni að sameinað félag yrði einn stærsti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 220 milljarða króna í stýringu. Ef sameiningin nær fram að ganga er stefnt að því að hún taki gildi um mitt næsta ár.

Boðaður samruni fjármálafyrirtækjanna á sér nokkurn aðdraganda en DV greindi fyrst frá því þann 21. október að Virðing hefði gert kauptilboð, með fyrirvara um fjármögnun, í hlutabréf í Kviku með það að markmiði að sameina félögin í kjölfarið. Tilboðið var lagt fram eftir að Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar, og Ármann Þorvaldsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Virðingar, höfðu fundað með ýmsum af stærstu hluthöfum Kviku og lýst yfir áhuga á að kaupa stóran hlut í bankanum. Stjórn Kviku taldi hins vegar ekki ástæðu til að koma því tilboði áleiðis til hluthafa enda væri það fjarri því að vera nægjanlega hagstætt.

Tæplega mánuði síðar kom Virðing með nýtt og endurbætt tilboð í allt hlutafé Kviku. Í bréfi sem stjórn Kviku sendi til hluthafa kom fram að hún mælti ekki með tilboðinu, einkum og sér í lagi þar sem Virðing væri metið alltof hátt í samanburði við Kviku, heldur taldi hún réttara að félögin yrðu sameinuð á grundvelli þess að Kvika myndi gera hluthöfum Virðingar kauptilboð í bréf þeirra. Niðurstaðan var að lokum hins vegar sem fyrr segir sú að eigið fé Kviku yrði lækkað um 600 milljónir króna með útgreiðslu til hluthafa sem myndu í kjölfarið eiga sjötíu prósenta hlut í sameinuðu félagi. Er það mat stjórnenda Virðingar að samlegðaráhrifin af samruna fyrirtækjanna yrðu um 500 milljónir króna á ári.

Enginn á meira en tíu prósent

Stærstu hluthafar Kviku í dag eru Lífeyrissjóður verslunarmanna með 9,9 prósenta hlut og fjárfestingarfélögin Snæból og Sigla, sem Finnur Reyr Stefánsson, fjárfestir og varaformaður bankans, fer fyrir, en samanlagður eignarhlutur þeirra er um 9,5 prósent. Á meðal annarra helstu hluthafa í Kviku eru Skúli Mogensen (Títan), Ármann Ármannsson (Ingimundur hf.), Guðmundur Jónsson (Mízar), viðskiptafélagarnir Grímur Garðarsson og Jónas Hagan Guðmundsson (Varða Capital) og Eggert, Guðný, Halldór og Gunnar Gíslabörn (Eignarhaldsfélagið Mata og Brimgarðar).

Stærstu eigendur Virðingar eru Birta lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna. Þá á Ármann tæplega 4,7 prósenta hlut í Virðingu ásamt meðfjárfestum í gegnum félagið MBA Capital auk þess sem Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður fyrirtækisins, Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir eru í hópi stærstu hluthafa félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Í gær

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt
Fréttir
Í gær

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks