Ekkert bendir til að að inflúensa sé að breiðast út í samfélaginu, að sögn embættis landlæknis. Enginn hefur greinst með inflúensu frá því í lok september, samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala.
Í þeim mánuði greindust tólf manns með inflúensu A, eldri borgarar að mestu. „Þessi óvænta inflúensuhrina náði ekki almennri útbreiðslu í samfélaginu og gera má því ráð fyrir árlegri inflúensu eins og venjulega í seinni hluta desember eða janúar,“ segir á vef landlæknis.