fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Þetta er eins og að upplifa stöðuga jarðskjálfta“

Íbúar í nágrenni Tryggvagötu langþreyttir á látlausu ónæði

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 16. desember 2016 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er gjörsamlega að sturlast á þessu ástandi. Þetta er eins og að upplifa stöðuga jarðskjálfta,“ segir Helga Nótt Gísladóttir, íbúi við Vesturgötu, í samtali við DV. Ástandið sem um ræðir eru framkvæmdir verktakafyrirtækisins Mannverks á Naustreit í miðbænum, sem afmarkast af Tryggagötu, Norðurstíg og Vesturgötu. Háværar framkvæmdir hafa staðið yfir síðan um miðjan ágúst og var áætlaður verktími 10–12 vikur. Verkið hefur tafist um rúman mánuð og ekkert útlit er fyrir að það klárist í bráð.

Niðurrif, kæra og almennt vesen

Framkvæmdirnar við Tryggvagötu hafa verið milli tannanna á fólki allt frá því að verktakafyrirtækið Mannverk reif niður svokallað Exeter-hús á reitnum í leyfisleysi. Það hús var byggt árið 1904 og var friðað. Eftir talsvert moldviðri baðst fyrirtækið afsökunar og hét því að endurreisa húsið í upprunalegri mynd. Síðan þá hefur fyrirtækið átt í góðu samstarfi við Minjastofnun um enduruppbygginguna. Niðurrifið var kært til lögreglu og er sú kæra enn í ferli.

Jarðvegsframkvæmdir við Naustreit hófust þann 18. ágúst síðastliðinn samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Naustreitsins. Áætluð verlok voru í byrjun nóvember. Rúmum tveimur vikum eftir áætluð verklok barst tilkynning inn á heimasíðu Naustreits um vinnu við losun klappar sem taka átti 2–3 daga. Síðan þá hefur hávaðinn verið ærandi og flestir íbúar í nærliggjandi húsum reyna að forðast eftir fremsta megni að vera heima hjá sér fyrr en um kvöldmatarleytið á virkum dögum. Það eiga þó ekki allir kost á því.

Sprengjuhöllin vannýtt gullnáma

„Ég er að jafna mig eftir krabbameinsaðgerð og þetta hefur verið hreint helvíti að búa við þetta. Hér nötrar allt frá átta að morgni og fram til rúmlega 18, alla virka daga og stundum um helgar líka,“ segir Helga Nótt, þegar hún tekur á móti blaðamanni og ljósmyndara á heimili sínu. Hún kallar húsið „Sprengjuhöllina“ og grínast með að ferðaþjónustufrömuðir hefðu átt að sjá sér leik á borði og leyfa erlendum ferðamönnum að upplifa íslenska jarðskjálfta í allri sinni dýrð. „Þeir gætu setið hérna með kaffi og nötrað allan daginn. Þetta er eiginlega vannýtt gullnáma,“ segir Helga Nótt og hlær. Hún er fyrrverandi loðdýrabóndi en hennar helsta verkefni nú er að reyna að ná fyrri heilsu, með húmorinn að vopni.

Lifir kannski í ár með hár

„Ég á að byrja í lyfjameðferð eftir áramót en er að íhuga hvað ég geri. Kannski ákveð ég að lifa í ár með hár,“ segir hún glettin. Óhætt er að segja að hávaðinn sé ærandi, taktföst höggin berast að utan og nísta í merg og bein. Allt leikur á reiðiskjálfi innandyra. „Það er hægt að sýna ákveðinn skilning á því að ónæði fylgi svona framkvæmdum. Hins vegar er glórulaust að hefja framkvæmdir svona snemma á daginn og um helgar á maður að fá frið. Það er að mínu mati mannréttindabrot að hafa þetta yfir sér um helgar,“ segir Helga Nótt.

Flúði að heiman

DV heyrði í nokkrum nágrönnum Helgu sem allir höfðu sömu sögu að segja. Hávaðinn væri ærandi en þeir sem eru í vinnu á hefðbundnum skrifstofutíma eru þolinmóðari gagnvart ástandinu. „Ég reyni að vera í vinnunni fram yfir kl.18 á hverjum degi og þá verð ég ekki var við þetta. Hins vegar er ég með útlendinga í heimsókn og þetta er erfitt fyrir þá,“ segir einn viðmælandi sem ekki vill láta nafn síns getið. Annar nágranni Helgu Nætur, James Falama, vinnur á næturvöktum og þarf því að hvílast yfir daginn. „Ég flúði að heiman fyrir rúmum mánuði og gisti hjá vinafólki. Þetta er afar hvimleitt ástand sem ég er að verða mjög þreyttur á. Það er ekki möguleiki að sofa í þessum hávaða,“ segir James.

Byrjuðu seinna en auglýst var

„Við hörmum þau óþægindi sem nágrannar okkar verða fyrir vegna framkvæmdanna. Þessari jarðvegsvinnu lýkur á allra næstum dögum og þá tekur uppbyggingin við,“ segir Hjalti Gylfason, framkvæmdastjóri Mannverks, í samtali við DV. Að hans sögn hefur fyrirtækið reynt að vanda sig í hvívetna til þess að sem minnst ónæði verði af framkvæmdum en tafirnar á framkvæmdunum megi rekja til breytts verklags.

„Við hófum ekki klapparlosun fyrr en 11. október, mun seinna en fyrst var auglýst. Það kom í ljós að klöppin var lausari í sér en talið var í fyrstu og þá var ákveðið að nota svokallaðan „vökvaripper“ til þess að kroppa hana upp. Við höfum því ekki þurft að sprengja eina einustu sprengju og aðeins þurft að beita fleygun í nokkrum tilvikum. Þær aðferðir valda mun meira raski,“ segir Hjalti.

Þá nefnir hann að Mannverk hafi, í samstarfi við byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar, leitað allra leiða til þess að gera framkvæmdirnar bærilegar fyrir nærliggjandi umhverfi. „Við beittum svokallaðri saumtækni, eða saumborun, þar sem allur úthringurinn er boraður til þess að rjúfa hljóð – og hristingsleiðni til nærliggjandi lóða. Það er óhjákvæmilegt að þétting byggðar skapi tímabundin óþægindi sem þessi en við róum að því öllum árum að halda þeim í lágmarki,“ segir Hjalti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“