fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Stærstu bomburnar brátt bannaðar

Síðasti séns til að kaupa sér risaskottertu nú um áramótin – Þar næstu áramót verða stöðluð af ESB

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 13. desember 2016 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skotglöðustu Íslendingar gætu fundið fyrir breytingum er snerta flugelda sem koma til framkvæmda þann 15. janúar næstkomandi, þegar aðlögunartími að gildistöku tilskipunar Evrópusambandsins varðandi skoteldareglugerð rennur út. Þá verða allir flugeldar sem fluttir verða inn og seldir hér á landi að uppfylla kröfur um CE-stöðlun. Flugeldasalar segja ljóst að það muni hafa áhrif á hversu mikið púðurmagn megi vera í stærstu skottertunum og flugeldunum sem selja má almenningi. Áramótin nú, geta því verið síðasti séns til að skjóta upp í stærstu flugeldunum og kveðja árið með hvelli sem ekki uppfyllir kröfur CE-stöðlunarinnar.

Upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, stærsta innflytjanda og söluaðila flugelda hér á landi, segir að boðið verði upp á annars konar vörur og að innkaupum verði hagað í samræmi við þetta. Einn eigandi flugeldasölu sem DV ræddi við, óttast að framboðið þá verði lítið annað en barnabombur og kúlublys.

Söluaðilar verið á aðlögunartíma

Þessar breytingar eiga sér nokkurn aðdraganda en íslenska ríkið var búið að skuldbinda sig til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins frá 2007 sem gerir meðal annars ráð fyrir að allir skoteldar skuli vera CE-samræmismerktir. Ákvörðun um innleiðinguna var tekin 2010 en hins vegar dróst að innleiða hana þar sem setja þurfti lagastoð í vopnalög hér á landi til að innleiða hana. Frumvarpið varð að lögum árið 2015 en í það sett bráðabirgðaákvæði þess efnis að framleiðendum og innflytjendum væri heimilt að aðlaga sig að reglunum til 15. janúar 2017. Þessi áramót verður því heimilt að selja flugelda eins og Íslendingar hafa þekkt þá hingað til, en eftir það taka lögin gildi.

Landsbjörg bregst við breytingum

„Við höfum verið að búa okkur undir þessar breytingar og innkaupin hafa tekið mið af því,“ segir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við DV um málið. Hann segir að breytingarnar verði helst þannig að það verði annars konar vörur sem boðið verður upp á, en hann gerir minna úr áhrifum þessa en aðrir, minni flugeldasalar sem DV hefur rætt við. Flugeldasala er mikilvægasta tekjulind björgunarsveitanna og ljóst að áhrifanna myndi gæta ef hoggið yrði í hana.

„Þetta er ekkert sem við óttumst og ég veit ekki með prósentur en þetta er lítill hluti af þeim vörum sem við höfum verið með til sölu, sem þessi breyting sem tekur gildi á næsta ári snertir.“

Þorsteinn segir að Landsbjörg geri pantanir sínar yfirleitt í ársbyrjun og innkaup næsta árs muni því miðast við það. „Þetta nær til þessara stærstu tertna sem við höfum verið að selja, en er lítill hluti.“

Barnabombur og kúlublys

„Ef ég er læs þá verður ekkert leyft nema barnabombur og kúlublys eftir 15. janúar,“ segir Einar Ólafsson, eigandi Alvöru flugelda sem flutt hafa inn og selt flugelda frá 2002. Þetta fái hann út úr því að hafa lesið staðla og reglugerðir er að þessu lúta og hann hafi fengið túlkun sína staðfesta hjá innanríkisráðuneytinu. Viðaukinn hafi heimilað skottertur allt að 25 kílóum og skothólkastærð allt að tveimur tommum, sem frá 15. janúar verði bannað.
„Þetta nær yfir stærstu terturnar hjá mér, sem er verulegur hluti af sölunni,“ segir Einar.

Flokkun á flugeldum skiptir upp í fjóra höfuðflokka þar sem fyrsti flokkur eru skoteldar sem skapa litla hættu og eru án aldurstakmarkana og má nota innanhúss og allan ársins hring. Flokkur tvö eru flugeldar ætlaðir til notkunar utandyra á afmörkuðu svæði en skapa litla hættu.

Í þriðja flokk falla flugeldar sem nota ber á opnum svæðu, skapa nokkra hættu og má eingöngu nota utandyra. Á meðan fjórði flokkur er ekki ætlaður til sölu til almennings og flugelda sem þar falla undir má aðeins nota í umsjá sérfræðinga á sviði skotelda. Samkvæmt túlkun flugeldasala sem DV hefur rætt við munu stærstu terturnar eftir breytinguna nú falla undir fjórða flokk og því ekki ætlaðar til almennrar sölu.

Spurning um öryggiskröfur

Neytendastofa er eftirlitsaðili samkvæmt lögum en Tryggvi Axelsson, forstjóri stofnunarinnar, segir í samtali við DV að honum sé ekki kunnugt um að verulegar breytingar séu að verða þarna á. Raunar vill hann snúa spurningunni við og spyrja hvaða vörur það séu sem menn vilja selja sem hafi verið svo langt umfram þessa staðla sem kveðið er á um í reglugerðinni.

„Framleiðendur bera ábyrgð á að framleiðsla sé í samræmi við þessa staðla. Það var töluvert um CE-merkingar í fyrra en skyldan kemur ekki að öllu leyti fyrr en á næsta ári. Þeir bera ábyrgð á að panta vörur sem eru í samræmi við þennan staðal, þannig að það sé aldrei yfir einhverjum mörkum sem þar eru tiltekin. Þá þarf maður að vita, hvaða skotkökur í flokki 3 hafið þið verið að bjóða upp á og selja, þar sem nettósprengiefni er meira en nú er verið að leyfa?“ segir Tryggvi sem lítur svo á að neytendur muni ekki finna teljandi mun og það það verði jafn gaman og áður um áramótin þrátt fyrir þetta.

„Aðalbreytingin felst í því að frá og með næstu áramótum eiga allar vörur að vera framleiddar og settar á markað sem taka mið af þessum öryggiskröfum í staðlinum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala