fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Brynjar og Bjarni vottaðir af Facebook

Sjálfstæðismennirnir í hóp útvalinna – Brynjar Níelsson var óvænt vottaður – „Vissi ekki hvað þetta var“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 30. nóvember 2016 08:00

Sjálfstæðismennirnir í hóp útvalinna – Brynjar Níelsson var óvænt vottaður – „Vissi ekki hvað þetta var“

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vissi ekki einu sinni hvað þetta var,“ segir þingmaðurinn Brynjar Níelsson sem óvænt er kominn í hóp örfárra og útvalinna Íslendinga sem vottaðir hafa verið af Facebook. Brynjar segir í samtali við DV að vottuninni hafi verið smellt á persónulegan prófíl hans að honum forspurðum og hann kannast ekkert við að hafa samþykkt né sótt um slíkt.

Í hóp með afreksmönnum

Vottun sem þessi á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum hlotnast vanalega frægu fólki með marga fylgjendur, fyrirtækjum eða vörumerkjum til að notendur geti áttað sig á því að þarna sé viðkomandi í raun og veru að baki því sem á síðunni birtist. Lausleg athugun DV leiddi í ljós að af stjórnmálamönnum eru aðeins Brynjar og opinber síða Bjarna Benediktssonar sem hlotið hafa slíka vottun hér. Þá hafa síður knattspyrnustjarnanna Eiðs Smára Guðjohnsen og Alfreðs Finnbogasonar fengið svona vottun, svo dæmi sé tekið, en annars eru þær fátíðar meðal Íslendinga.

Einu stjórnmálamennirnir

„Allt í einu var kominn blár hringur við nafnið mitt og ég vissi ekkert hvað þetta var. Svo sagði ein kona við mig: „Mikið þykist þú vera orðinn merkilegur.“ Ég kom af fjöllum og þá sagði hún að þetta fái bara sumir og það þurfi eitthvert umsóknarferli og vesen til. En ég þurfti ekki mikið umsóknarferli því þetta kom mér algjörlega að óvörum.“
Athygli vekur að vottunin er á persónulega síðu Brynjars og er hann þar sér á báti hvað varðar kjörna fulltrúa þjóðarinnar varðar. Enginn af ráðherrum fráfarandi ríkisstjórnar hefur fengið slíka upphefð, að Bjarna undanskildum, né opinber síða forseta Íslands. Ljóst er að Brynjar er kominn í hóp útvalinna.

Opinberar síður Bjarna Benediktssonar, ráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og knattspyrnukappanna Eiðs Smára Guðjohnsen og Alfreðs Finnbogasonar eru meðal þeirra sem fengið hafa vottun Facebook við nöfn sín.
Vottaðir Opinberar síður Bjarna Benediktssonar, ráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og knattspyrnukappanna Eiðs Smára Guðjohnsen og Alfreðs Finnbogasonar eru meðal þeirra sem fengið hafa vottun Facebook við nöfn sín.

Kann ekkert á Facebook

„Það getur vel verið að þeir hafi sent mér eitthvað án þess að ég hafi tekið eftir því, en ég efa það. Ég kann ekkert á tölvur. Ég kann ekkert á Facebook, nema að ég get sett inn færslur og fíflast. Það kom mér því á óvart að þessi blái hringur með hvíta hakinu væri allt í einu kominn og þá var mér sagt að þetta væri eitthvað sem færi í gegnum eitthvert ferli. Ég fór ekki í gegnum neitt ferli og þetta kom fyrirvaralaust.“

Á upplýsingasíðu Facebook segir að sumar síður og prófílar einstaklinga fái vottun sem þessa til að tryggja að notendur geti treysti því að síðan sé ekta. Vottunarmerkið þýði að Facebook hafi staðfest að síðan sé ekki falsprófíll eða síða og viðkomandi sé „opinber fígúra, fyrirtæki eða vörumerki.“

Nú má hafa af honum æruna

Brynjar grínast með þetta og segir að nú þegar hann sé orðinn „opinber fígúra“ – með áherslu á seinna orðið, megi þá líklega rífa af honum æruna í nafni tjáningarfrelsis.

„Dómstólar segja það. Þegar þú ert orðin opinber fígúra þá má segja meira um þig en aðra.“

Glettinn segir Brynjar að hann verði nú að fara varlega í að stríða Pírötum í framtíðinni svo hann fái ekki á sig ákæru fyrir hatursumræðu.

„Nú þorir maður ekki að gera neitt,“ segir Brynjar og hlær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”