Bjarni Ákason og Valdimar Grímsson í viðræðum við Hafnartorgs-fjárfestinn Guðna Rafn
Gengið verður frá sölu Apple-umboðsins á Íslandi á næstu dögum að óbreyttu en viðræður milli núverandi eigenda fyrirtækisins og fjárfestisins Guðna Rafns Eiríkssonar eru á lokametrunum. Umboðið er í eigu Bjarna Ákasonar, framkvæmdastjóra epli.is, og Valdimars Grímssonar, fjárfestis og fyrrverandi handboltakappa. Ljóst er að kaupverðið hleypur á hundruðum milljóna króna en Bjarni og Valdimar keyptu fyrirtækið, sem hefur umboð fyrir Apple-tölvur, á 160 milljónir í miðju efnahagshruninu.
„Þetta er allt í ferli og við höfum alltaf sagt að ef það kemur réttur kaupandi, og Apple samþykkir, þá séum við tilbúnir að selja. Þetta er í vinnsluferli og það er ekki hægt að tímasetja eitt eða neitt,“ segir Valdimar í samtali við DV.
Einkahlutafélagið Skakkiturn, í eigu Bjarna og Valdimars, er umboðsaðili Apple á Íslandi og rekur verslanir undir merkinu Epli. Fyrirtækið nýtur því ákveðinna sérkjara á tölvum frá Apple og er í dag heildsali og smásali á vörum bandaríska raftækjaframleiðandans. Samkvæmt nýjasta ársreikningi Skakkaturns nam velta umboðsaðilans í fyrra alls 2,7 milljörðum króna. Hagnaðurinn var þá 81 milljón króna og 177 milljónir árið á undan. Heildarhagnaður Skakkaturns frá 2009 til 2015 nemur 713 milljónum. Arðgreiðslur til eigendanna námu 150 milljónum í fyrra og lagði stjórn Skakkaturns í sumar til að þeir fengju 180 milljónir í arð á þessu ári vegna rekstrarársins 2015. Eignir félagsins umfram skuldir námu í lok síðasta árs 442 milljónum og eiginfjárhlutfallið var þá 39 prósent.
Félag Bjarna og Valdimars keypti Apple-umboðið út úr þrotabúi Humac ehf. á 160 milljónir króna síðla árs 2008 í miðju efnahagshruni. Humac átti þá einnig umboðið fyrir Apple á Norðurlöndunum en Bjarni var í eigendahópi þess þangað til í apríl 2007. Þá seldi hann hlut sinn til Baugs Group og á þeim tíma var félagið metið á 1,5 milljarða króna. Í maí 2009 seldi Skakkiturn starfsemi félagsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi en það rak áður 15 verslanir í löndunum þremur.
Guðni Rafn Eiríksson staðfestir í samtali við DV að salan sé á lokametrunum og að hann standi einn að kaupunum. Eins og Valdimar vill hann engu svara um kaupverðið. Guðni var hluthafi í Reykjavík Development, áður Landstólpa þróunarfélagi ehf., sem átti byggingarreitinn Hafnartorg í miðbæ Reykjavíkur þar sem opna á meðal annars verslun fatakeðjunnar H&M. Systurfélag verktakafyrirtækisins ÞG Verk keypti Reykjavík Development og reitinn í apríl síðastliðnum og samkvæmt frétt DV nam kaupverðið um fjórum milljörðum króna. Hluthafahópurinn sem Guðni tilheyrði keypti lóðirnar tvær sem mynda reitinn af ríkinu og Reykjavíkurborg á 1,8 milljarða króna árið 2014.