fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Kvika og Virðing í eina sæng

Hafa undirritað viljayfirlýsingu – Stefnt að samruna um mitt næsta ár

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 29. nóvember 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um undirbúning samruna félaganna undir nafni Kviku. Í aðdraganda sameiningar verður eigið fé Kviku lækkað um 600 milljónir króna og lækkunin greidd til hluthafa bankans. Hluthafar Kviku munu eftir samruna eiga 70 prósenta hlut í sameinuðu félagi og hluthafar Virðingar 30 prósent.

„Sameinað félag yrði einn stærsti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 220 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í rekstri s.s. verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði, framtakssjóði, fasteignasjóði, veðskuldabréfasjóði og ýmsa fagfjárfestasjóði. Auk þess myndi sameinað félag ráða yfir öflugum markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfðri lánastarfsemi og einkabankaþjónustu. Á næstu vikum verður unnið að samkomulagi um helstu skilmála fyrir samrunanum, þ.m.t. um forsendur, gerð áreiðanleikakannana, endanlega samningsgerð og aðgerðar- og tímaáætlun. Ef sameining félaganna nær fram að ganga er stefnt að því að hún taki gildi um mitt næsta ár,“ segir í tilkynningu um samrunann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga