Í hraðkosningur Pírata í gær var samþykkt að gera ekki lengur þá kröfu til ráðherra annarra flokka að þeir segi af sér þingmennsku. Nú gildir reglan bara um þingmenn Pírata. 244 kusu í kosningunni en 89% studdu breytinguna.
Málið hefur verið talið eitt af þeim sem staðið gæti í hugsanlegum samstarfsflokkum Pírata í stjórnarmyndunarviðræðum. Nú bendir hins vegar flest til að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Björt framtíð myndi ríkisstjórn.