Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð og herðar yfir aðra flokka samkvæmt nýrri könnun Gallup sem birt er á vef Ríkisútvarpsins. Mælist flokkurinn með 27% fylgi en helstu keppinautar þeirra Píratar, halda áfram að lækka og eru nú í 17,9 prósent. Vinstri græn mælast með 16,5.
Framsóknarflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn með 9,3 prósent. Viðreisn myndi fá 8,8 prósent, Samfylking 7,4 prósent og Björt framtíð 6,8 prósent. Flokkur fólksins mælist með 3,4 prósent.
Úrtakið var 3,508 manns og 55% svöruðu könnuninni. Niðurstöðurnar svipa til könnunar sem Stöð 2 framkvæmdi og birtist í gær. Þetta er síðasta könnun Gallup fyrir kosningar en á vef Rúv segir að sú könnun þyki oft gefa góða vísbendingu um niðurstöður kosninganna. Nánar er fjallað um niðurstöðuna á vef Rúv.