fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Tekjurnar hrundu um milljarða út af Rússum

Velta Iceland Pelagic lækkaði um 9,6 milljarða í fyrra – „Verður áfram erfitt“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 26. október 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tekjur Iceland Pelagic, sölufyrirtækis útgerðarfélaganna Skinneyjar-Þinganess og Ísfélags Vestmannaeyja, lækkuðu um 9,6 milljarða króna í fyrra miðað við árið á undan. Fyrirtækið seldi þá sjávarafurðir fyrir 14,3 milljarða en samdráttinn má að miklu leyti rekja til efnahagsmála í Rússlandi og viðskiptabannsins sem ráðamenn þar settu á vörur frá Íslandi.

Iceland Pelagic var stærsti útflytjandi landsins á uppsjávartegundum til Rússlands og Hermann Stefánsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir það hafa þurft að afskrifa „stórar upphæðir“ vegna krafna þar í landi. Vill hann ekki svara því hvort afskriftirnar hafi numið hundruðum eða þúsundum milljóna.

Ísfélag Vestmannaeyja á helmingshlut á móti Skinney-Þinganesi í Iceland Pelagic. Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmannaeyjum, er eigandi Ísfélagsins.
Ísfélag Vestmannaeyja á helmingshlut á móti Skinney-Þinganesi í Iceland Pelagic. Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmannaeyjum, er eigandi Ísfélagsins.

„Við eigum enn kröfur eða erum búnir að tapa þeim hvernig sem litið er á það. Þegar fór að þrengja að efnahagsástandinu í Rússlandi töpuðum við miklu og líklega mestu þar sem við vorum stærstir. Ég get ekki sagt hversu miklu, svona opinberlega, en það voru stórar upphæðir,“ segir Hermann.

Kröfur og viðskiptabann

Iceland Pelagic hafði í árslok 2014 selt sjávarafurðir fyrir 23,8 milljarða króna á árinu. Nokkrum vikum áður en reikningsárinu lauk eða um miðjan desember var útlit fyrir að útflutningur á íslenskum sjávarafurðum til Rússlands stöðvaðist vegna versnandi efnahagsástands þar í landi. Óvissa var um framhaldið og hvort fiskútflytjendur fengju greitt fyrir vörur sem voru farnar frá landinu. Þeir seldu þá mikið af uppsjávarfiski, eins og makríl, síld og loðnu, til rússneskra fyrirtækja en viðskiptin námu alls sextán milljörðum króna árið 2013.

Hermann Stefánsson sagði í samtali við Fréttablaðið í desember 2014 að rússnesk fyrirtæki skulduðu fiskútflytjendum á bilinu þrjá til fimm milljarða króna fyrir fisk sem hafði þá verið afhentur. Stærsti hluti viðskiptanna hafi verið í opnum reikningi þar sem Rússarnir fengu vörur án þess að búið væri að greiða fyrir þær. Átta mánuðum síðar settu Rússar viðskiptabann á íslenskar sjávarafurðir sem er enn í gildi.

Hermann Stefánsson.
Framkvæmdastjórinn Hermann Stefánsson.

„Gengisbreytingar höfðu að einhverju leyti áhrif í fyrra en að eðlilegu leyti var það Rússlandsmarkaður sem hafði áhrif og lægra verð á öllum afurðum. Svo vorum við með minna magn sem skapast einnig að hluta til út af Rússlandi. Þetta má því að miklu leyti rekja til þess að við höfðum ekki Rússlandsmarkað,“ segir Hermann.

Tapaði 174 milljónum

Sölufyrirtækið var rekið með 174 milljóna króna tapi í fyrra og neikvæðri afkomu upp á 256 milljónir árið á undan. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi var eigið fé þess, eignir mínus skuldir, jákvætt um 95 milljónir í árslok 2015. Skuldirnar námu þá 3,6 milljörðum króna en 5,4 milljörðum árið á undan. Í árslok 2014 átti félagið viðskiptakröfur upp á 3,2 milljarða en þær námu ári síðar 1,9 milljörðum. Aðrar skammtímakröfur lækkuðu úr 995 milljónum í 230 milljónir.

„Eftir að Rússland lokaðist höfum við verið að selja meira inn á Afríku og Asíu og aðra markaði sem við seldum á fyrir þann tíma. Loðnan fer svo í bræðslu því það er ekkert annað í boði þar. Þetta verður áfram erfitt og þá sérstaklega hvað snertir loðnuna. Ef við fáum að veiða hana er lítill markaður fyrir fiskinn og eiginlega bara Úkraína. Megnið af framleiðslunni undanfarinn áratug hefur farið á Rússland og það er enginn annar markaður þar en mjöl og lýsi. Iceland Pelagic selur ekki mjöl og lýsi og það sést því ekki í tölunum okkar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás