Hefur verið saknað síðan í sumar – Landhelgisgæslan fann neyðarsendinn
Landhelgisgæslunni barst klukkan fimm í morgun merki frá neyðarsendi seglskútu sem saknað hefur verið frá því í sumar. Síðast var vitað um ferðir skútunnar milli Portúgals og Azoreyja. Í tilkynningu sem Landhelgisgæslan sendi frá sér í morgun var staðsetning neyðarsendisins skammt suðvestur af Grindavík og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang. Um klukkan sex í morgun fann áhöfn þyrlunnar neyðarsendinn upp í fjöru austur af Hópsnesi. Engin önnur merki um skútuna var að finna en skoðað verður með frekari athugun á svæðinu í birtingu.