Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson fjárfesta í verksmiðjunni fyrir 575 milljónir
Fjárfestarnir Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson hafa lofað fimm milljónum dala, jafnvirði 575 milljóna króna, til fjármögnunar kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík. Fjárfestingin mun samkvæmt heimildum DV tryggja þeim um 4,3 prósenta hlut í verkefninu. Björgólfur Thor Björgólfsson, meðfjárfestir tvímenninganna í breska fjárfestingarfélaginu Novator Partners LLP, tekur ekki þátt í fjármögnun verksmiðjunnar.
Andri og Birgir Már eru nánustu samstarfsmenn Björgólfs Thors en sá fyrrnefndi sat í stjórn Landsbanka Íslands í kjölfar einkavæðingar hans fyrir hönd eignarhaldsfélagsins Samson. Félagið var kjölfestufjárfestir í bankanum og í eigu Björgólfs Thors og föður hans Björgólfs Guðmundssonar. Það fór í þrot skömmu á eftir bankanum eða í nóvember 2008. Birgir Már var um tíma framkvæmdastjóri Samson en hefur síðustu ár setið sem stjórnarformaður íslenska tölvuleikjaframleiðandans CCP og í stjórn fjarskiptafélagsins Nova. Breska fjárfestingarfélagið er stærsti einstaki eigandi CCP, í gegnum íslensk dótturfélög, og seldi í byrjun október allt hlutafé sitt í Nova.
Samkvæmt heimildum DV koma félög tengd Novator ekki að fjármögnun verksmiðju Thorsil. Andri og Birgir hafi ákveðið að fjárfesta í verkefninu á eigin vegum. Þegar salan á Nova var tilkynnt sagðist Björgólfur Thor ekki ætla að nota afrakstur hennar, ríflega fimmtán milljarða króna, til fjárfestinga hérlendis. Ekki náðist í Andra eða Birgi Má við vinnslu fréttarinnar.
DV greindi þann 7. október síðastliðinn frá því að forsvarsmenn Thorsil myndu ljúka söfnun á þrettán milljarða króna hlutafé síðar í þessum mánuði. Samningar við fjóra lífeyrissjóði, bandaríska fjárfestingarfyrirtækið Equity Asset Group, og innlenda fag- og einkafjárfesta, biðu undirritunar. Kom þá fram að Lífeyrssjóður verslunarmanna, LSR, Almenni lífeyrissjóðurinn og Frjálsi lífeyrissjóðurinn ætluðu að leggja til samtals tæpa fjóra milljarða króna í hlutafé og Equity Asset Group um 40 milljónir dala eða 4,5 milljarða. Eigendur Thorsil og aðrir íslenskir fjárfestar hefðu skuldbundið sig fyrir því sem vantar upp í 116 milljóna dala hlutafé verksmiðjunnar, eða sem nemur 13,2 milljörðum króna. Búið væri að ganga frá lánasamningum við Arion banka, Íslandsbanka, og einn erlendan banka, en heildarfjárfesting Thorsil nemur 275 milljónum dala eða 31,6 milljörðum króna.
Núverandi eigendur Thorsil eru Northsil ehf. með 61 prósents eignarhlut og Strokkur Silicon ehf. með 39 prósent. Northsil er aftur í eigu Johns Fenger, stjórnarformanns Thorsil, Hákonar Björnssonar, forstjóra fyrirtækisins, Einars Sveinssonar, fjárfestis og föðurbróður Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, og Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja. Strokkur er í eigu fjárfestisins Harðar Jónssonar en Eyþór Arnalds, fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, er framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður í Thorsil.
Samkvæmt upplýsingum DV hafa eigendur Thorsil tekið ákvörðun um að þeir muni, ásamt öðrum, leggja til það hlutafé sem upp á vantar. Þar af ætli Strokkur Silicon að eiga um 10 prósenta hlut í verksmiðjunni. Samkvæmt hlutafélagaskrá Ríkisskattstjóra hafa eigendur Thorsil nú þegar lagt fyrirtækinu til 852 milljónir króna í hlutafé.