Aukin fjöldi nettengdra tækja ógnar öryggi fólks
Netárás átti sér stað á fjölda vefsíðna í gær. Samfélagsmiðlar og efnisveitur á borð við Twitter, Airbnb og Netflix voru gerðar óaðgengilegar fyrir milljónir notenda í Bandaríkjunum og Evrópu, samband við Spotify var einnig rofið á tímabili. Greint er frá þessu á Kjarnanum.
Tilkynningar um óaðgengilegar vefsíður hófust í gærmorgun á austurströnd Bandaríkjanna og höfðu náð yfir á vesturströndina þegar leið á kvöldið. Netárásirnar hafa ekki einskorðast við tölvur heldur hefur verið ráðist á ýmis tæki sem tengjast internetinu eins og síma og jafnvel barnapíutæki.
New York Times greinir frá því að aðilar sem stunda öryggisrannsóknir á internetinu hafi lengi varað við að aukinn fjöldi tækja sem notast við internetið geti skapað mikla ógn við öryggi fólks. Þeir segja þessa árás aðeins brot af því hvernig hægt er að nota tækin til netárása.
Árásin er til rannsóknar hjá Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna og bandaríksu Alríkislögreglunni.