fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Skallaður í andlitið

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 22. október 2016 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt nítján ára karlmann fyrir líkamsárás sem framin var aðfaranótt 20. desember í fyrra. Maðurinn var ákærður fyrir að skalla annan mann í andlitið í Tryggvagötu í Reykjavík með þeim afleiðingum að fórnarlambið nefbrotnaði.

Maðurinn neitaði sök fyrir dómi og sagðist aðeins hafa ýtt við höfði fórnarlambsins með höfði sínu. Það hefði ekki verið fast. Dómurinn taldi það hafið yfir allan vafa að maðurinn hefði skallað brotaþola með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði.

Héraðsdómur dæmdi manninn í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða brotaþola 180 þúsund krónur í skaðabætur og 585 þúsund krónur í sakarkostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu