Gunnar Bragi Sveinsson lætur af embætti ráðherra eftir fáeina daga
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði aðstoðarmann sinn, sem jafnframt er mágkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, í stjórn Matís í fyrradag. Einnig skipaði hann Viggó Jónsson, aðalfulltrúa Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar í stjórnina. Gunnar Bragi lætur af embætti ráðherra eftir fáeina daga. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu.
Tveimur stjórnarmönnum í Matís var vikið úr stjórn kvöldið fyrir aðalfundinn. Þeim mun hafa verið tilkynnt að þjónustu þeirra væri ekki óskað. Einn til viðbótar hætti af sjálfsdáðum.
Fram kemur í Fréttablaðinu að rekstur Matís, sem er vísinda- og nýsköpunarfélag, hafi gengið mjög vel.
Rifjað er upp að Gunnar Bragi hafi „dælt út skúffufé utanríkisráðuneytisins“ deginum áður en hann vék úr utanríkisráðuneytinu fyrr á kjörtímabilinu.