Helmingi lesenda DV hugnast ekki útspil Pírata að bjóða öðrum flokkum til viðræðna um samstarf eftir kosningar. 44% svarenda eru á öndverðum meiði og kunna að meta útspilið. 5,5% eru á báðum áttum.
Píratar áttu sviðið í síðustu viku þegar fréttir bárust af því að þeir hygðust bjóða stjórnarandstöðuflokkunum, auk Viðreisnar, til stjórnarmyndunarviðræðna fyrir kosningar. Síðan hugmyndin kom fyrst fram hefur nokkur gerjun átt sér stað. Nú eru viðræðurnar ekki lengur kallaðar stjórnarmyndunarviðræður á vef Pírata, heldur „formlegar viðræður um samstarf“.
DV spurði lesendur „Hugnast þér útspil Pírata?“ og bauð upp á valkostina „Nei“, „Já“ og „Ég er er á báðum áttum“. Um 950 manns tóku þátt.
Tekið skal fram að könnunin er ekki vísindalega gerð og varhugavert er að draga af henni miklar ályktanir. Hún endurspeglar aðeins viðhorf þeirra lesenda DV sem tóku þátt.