Poppstjarnan á von á sínu fyrsta barni
Fyrr í vikunni sást til Janet Jackson sem á von á sínu fyrsta barni í verslunarleiðangri í London.
Janet sem varð fimmtug í maí er kasólétt en hún tilkynnti aðdáendum sínum að hún ætti von á barni í byrjun sumars. Janet hefur látið lítið fyrir sér fara síðan.
Líkt og sjá má á myndunum er poppdrottningin kasólétt en hún hefur ekki látið uppi hvenær von er á krílinu í heiminn.
Í apríl tilkynnti Janet að hún væri búin að taka ákvörðun um að slá tónleikaferðalagi sínu á frest þar sem hana langaði að stofna fjölskyldu og læknir hefði ráðlagt henni að taka því rólega.
Nokkrum vikum síðar greindi bróðir hennar, Tito, frá því opinberlega að hún ætti von á barni. Janet staðfesti síðar orð bróður síns en hún og eiginmaður hennar, Wissam Al Mana, bíða spennt eftir fæðingu frumburðarins.