Lögreglan skoðar meint ofbeldismyndband: „Ekkert djók við þetta“

Myndbandið með hátt í sex þúsund áhorf á Facebook – Enginn leitað til lögreglu vegna málsins

Hér má sjá þegar að manninum er hent niður.
Úr myndbandinu. Hér má sjá þegar að manninum er hent niður.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til skoðunar myndband af meintu ofbeldisverki hér á landi. Myndbandið var birt á Facebook í vikunni og hefur fengið hátt í sex þúsund áhorf.

Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar hefur lögreglan fengið nokkrar ábendingar um myndbandið á síðustu dögum.

„Við erum búin að sjá myndbandið og erum að skoða það. Við brugðumst við í samræmi við okkar regluverk,“ segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, í samtali við DV en lögreglan athugaði hvort að einhver hefði leitað til hennar vegna málsins. Árni segir að svo sé ekki.

„Samkvæmt okkar upplýsingum hefur enginn leitað til lögreglu vegna málsins.“

Það var Stefán Þór Guðgeirsson sem birti myndbandið á Facebook-síðu sinni skömmu fyrir hádegi síðastliðinn miðvikudag. Myndbandið er birt sem opin færsla og því aðgengileg öllum. Annar maður, Sævar Örn Hilmarsson, er einnig merktur í myndbandinu.

Stefán var árið 2011 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun og rán en hann réðst á vændiskonu sem hann hafði leitað til. Þá staðfesti Hæstiréttur Íslands nálgunarbann yfir Sævari undir lok síðasta árs gegn Gilberti „sober“ Sigurðssyni vegna hótana.

Á myndbandinu má sjá tvo karlmenn halda í fæturna á öðrum karlmanni. Þeim manni er haldið fyrir utan handrið í húsi á Frakkastíg í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum DV, og er töluverð hæð fyrir neðan. Sá sem hangir fyrir utan grindverkið er því á hvolfi.

Annar maðurinn sem heldur í fæturna kallar þann sem er á hvolfi „tíkin þín“ og segist ætla að henda honum niður.

Því næst er manninum kastað svo að hann snýst við og lendir á bakinu. Í færslu Stefáns, þar sem myndbandið var birt, segir:

„Slapp með tognaðan háls upp á spítala. Og vaknaði með bleyju. $$$“

Mikið hefur verið rætt um myndbandið á samfélagsmiðlum í vikunni og hefur verið horft á það tæplega sex þúsund sinnum, samkvæmt talningu á Facebook. Því hefur meðal annars verið haldið fram að um sviðsetta atburðarás sé að ræða, enda virðist maðurinn lenda á einhverju þegar hann fellur til jarðar.

Stefán og Sævar hafa hvorki staðfest né neitað þeim staðhæfingum að um sviðsetta atburðarás sé að ræða í athugasemdum við myndbandið. Ótengdur aðili segir þó að ekki sé um sviðsettan atburð að ræða.

„Nei veistu það er ekkert djók við þetta. Þessi ógeðslega framkoma þessa manns er búin að langt yfir strikið. Verst að fallið hafi ekki verið meira en 4 metrar. Vonandi lærði hann af þessu,“ segir í athugasemdinni sem Stefán Þór líkaði við.

Líkt og segir að ofan er myndbandið til rannsóknar en ekki vitað hvort um sé að ræða ósmekklegt grín, skilaboð til annarra eða hreint og klàrt ofbeldisverk.

Hér má sjá myndbandið.

Slapp með tognaðan háls uppáspítala. Og vaknaði með bleyju. $$$

Posted by Stefan Thor on 27. janúar 2016

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.