Fjarlægja merkingar um kyn á salernum í Akurskóla: Ekki lengur kynjaskiptur

„Allir eiga rétt á að vera eins og þeir eru“

„Við þurfum að vera meðvitum að um þá staðreynd að við erum ekki öll eins og það eiga allir rétt á að vera eins og þeir eru,“ segir Sigurbjörg Róbertsdóttir skóalstjóri Akurskóla en ákveðið hefur verið að fjarlægja merkingar um kyn á salernum í skólanum. Segir Sigurbjörg að þar sem að í dag stundi trans einstaklingar nám við skólann semog einstaklingar af óræðu kyni, þá sé það ekki skólans að setja þá í fyrirfram ákveðin box.

Þetta þýðir að nemendur geta sjálfir valið hvaða salerni þeir nota. Í samtali við vefinn Gay Iceland segir Sigurbjörg að skólinn setji heldur ekki sérstakar reglur um það hverju nemendur klæðast í sundi.„Við sjáum ekkert að því að stelpur mæti í sundskýlum í sund ef þær vilja, eða að strákar mæti í sundbolum. Börnin geta einfaldlega valið.“

Hún segir viðbrögðin við þessum breytingum hafa verið afar góð: „Við höfum aðeins fengið jákvæð viðbrögð frá foreldrum auk þess sem kennarar og starfsfólk kunna vel að meta þetta, enda eru þau flest öll sjálf foreldrar. Foreldrar þeirra barna sem falla ekki inn í normið eru afar þakklát fyrir þessa nýbreytni.“

Þá hvetur hún aðra skóla til að feta í þeirra fótspor. „Ég hef talað við aðra skólastjórnendur hér á svæðinu sem eru einnig að hugleiða að taka þetta upp. Ég á allavega erfitt með að trúa því að við séum eini skólinn á Íslandi með nemendur sem eru trans eða af óræðu kyni,“ segir Sigurbjörg jafnframt en viðtalið má lesa í heild sinni hér

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.