505 ljósmyndum úr Free the Nipple-átakinu dreift á netinu í einum pakka
„Sharing is caring, especially when it comes to the world's most beautiful girls“ - Átakið vakti heimsathygli
Einhver óprúttinn aðili hefur tekið sig til og safnað saman yfir fimm hundruð ljósmyndum af íslenskum stelpum sem tóku þátt í Free the Nipple-átakinu í lok maí á þessu ári. Ljósmyndirnar eru nákvæmlega 505 talsins og eru nú boðnar í einum pakka á íslenskri skráaskiptasíðu en átakið Free the Nipple vakti heimsathygli fyrr á árinu.
Sá sem deilir ljósmyndapakkanum tekur fram í lýsingu á síðunni að ef einhverjar stelpur séu ósáttar við myndbirtinguna þá sé hægt að hafa samband og þær ljósmyndir teknar út. Það gæti þó verið erfitt þar sem aðilinn sem setti pakkann inn á skráaskiptasíðuna felur sig á bakvið nafnleynd.
Sjá einnig: Fjölmargar stelpur mættu fáklæddar í skólann
Stór hluti af ljósmyndunum er merktur viðkomandi og því ljóst, ef rétt reynist, að lögð hefur verið töluverð vinna í að safna þeim saman og merkja. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem brjóstamyndum íslenskra kvenna er safnað saman eftir Free the Nipple-átakið en einhverjar ljósmyndir dúkkuðu upp á sömu skráarskiptasíðu í lok maí þegar átakið stóð sem hæst.
Söfnun ljósmyndanna og birting þeirra í pakka á skráarskiptasíðu var aldrei markmið þeirra stúlkna og kvenna á öllum aldri sem tóku þátt í Free the Nipple-átakinu en markmið þess var meðal annars að segja hefndarklámi stríð á hendur. Sá sem deilir pakkanum virðist ósammála því og segir „Sharing is caring, especially when it comes to the world's most beautiful girls“ eða „Að deila er að sýna væntumþyggju, sérstaklega þegar það kemur að fallegustu konum í heimi.“
Sjá einnig: Kvörtuðu ekki yfir berum brjóstum
Svo virðist sem að aðstandendur skráaskiptasíðunnar hafi ekki viljað dreifa þessum pakka því stuttu eftir að ljósmyndirnar voru boðnar til niðurhals á síðunni þá var hann fjarlægður.
Eftir nokkra eftirgrennslan blaðamanns er ekki hægt að sjá að óprúttni aðilinn hafi bætt við pakkanum á síðuna aftur og því ljóst að stjórnendur skráaskiptasíðunnar eru með íslensku kvenfólki í liði og hinum frábæra málstað Free the Nipple.











