Kristinn H Gunnarsson gagnrýnir Samtökin 78
„Samtökin 78 eiga að gleðjast yfir miklum árangri frá 1978 í stað þess að hóta málaferlum“
„Samtökin 78 eiga að gleðjast yfir miklum árangri frá 1978 í stað þess að hóta málaferlum af því að til eru einstaklingar innan Þjóðkirkjunnar rétt eins og öðrum trúarfélögum og víðs vegar um þjóðfélagið sem ekki eru sammála hjónavígslu samkynhneigðra. Það er ekki bannað að hafa þá skoðun, stjórnarskráin tryggir mönnum það. Þetta er farið að líkjast meira aðför að þjóðkirkjunni en réttindabaráttu.“
Þetta skrifar Kristinn H Gunnarsson í ummælakerfi á vefnum Eyjan. Ummælin eru undir frétt þar sem greint er frá því að Samtökin 78 hyggist leita til dómstóla verði ákvæðum í hjúskaparlögum sem veita prestum heimild til að neita að gefa saman pör af sama kyni látin standa óbreytt.
Lögmaður Samtakanna 78 segir að mismunum á grundvelli kynhneigðar eða kynvitundar með þessum hætti standist ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Vígslubiskupinn í Skálholti segir á hinn bóginn að samviskufrelsi presta sé stjórnarskrárvarið og meðal dýrmætustu mannréttinda.
Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, tekur í sama streng og Kristinn H og ritar:
Málið sýnir fyrst og fremst nauðsyn þess að aðskilja ríki og kirkju.
„Hitt er annað mál að mér finnst sem Samtökin 78 ættu frekar að viðurkenna að það hafa orðið stórstígar viðhorfsbreytingar hjá ríkiskrikjunni á tiltölulega skömmum tíma sem ætti að þakka. Samtökin ættu ekki síður að beina sjónum sínum að öðrum trúfélögum sem hafa verið að skjóta rótum á Íslandi og eru með forneskjuleg viðhorf gagnvart samkynhneigðum.“
Þjóðfélagsrýnirinn og tónlistargagnrýnandinn Sigurður Þór Guðjónsson gagnrýnir hins vegar ummæli þingmannanna fyrrverandi og skrifar:
„Í tvígang eru menn hér í athugasemdum (Sigurjón Þórðarson og Kristinn H. Gunnarsson) að skipa Samtökunum 78 fyrir verkum, að þau ættu að gera eitthvað annað en þau eru að gera. Í því felst í sjálfu sér lítilsvirðing. Menn þykjast fara létt með að setja sig á háan hest yfir samtökum sem ekki veit hvað þau ættu að gera þó þessir tveir fyrrverandi alþingismenn viti það með yfirburða glans. Forsenda málsóknarinar er þó skýr eins og þarna sést í fréttinni. Svo eru Samtökin 78 sökuð um vanþakklæti þó þau hafi oft glaðst yfir þeim árangri sem náðst hefur í viðhorfum til samkynheigðra. Auk þess eru Samtökin sett upp eins og þau vaði uppi með hótanir sem er auðvitað ógeðfellt athæfi hjá hvejrum sem er. Að segjast leita réttar síns er ekki hótun. Og loks eru samtökin sökuð um aðför að þjóðkirkjunni. Svona orðræða, að ég ekki segi orðafroða, full af neikvæðum formerkjum og besservissersrembingi, er ein af klassíksum birtingarmyndum óvildar sem stafar af fordómum og kyndir undir þá.“











