Typpi spreyjað á hurðina: „Þetta mætti okkur eftir leikskólann“
Kynfræðingurinn Sigga Dögg skilur ekkert í skemmdarverkinu sem beið hennar í dag – „Á þetta að vera fyndið?“
„Við vorum bara að koma úr ferð með leikskólanum í dag og þá mætti okkur mæðgum þessi typpamynd á útidyrahurðinni. Ég skil ekki alveg pælinguna á bakvið þetta, fær tónmenntakennari nótur á útidyrahurðina hjá sér,“ segir Sigríður Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem Sigga Dögg kynfræðingur.
„Á þetta að vera fyndið?“
Sigga Dögg fór út ásamt dóttur sinni um eitt leytið í dag og kom tilbaka nokkrum klukkustundum síðar en þá hafði einhver óprúttinn aðili notað spreybrúsa á útidyrahurðina á heimili hennar. Sigga Dögg segist ekki hafa verið að fjalla um nein viðkvæm mál að undanförnu og því sé ekki hægt að skilja þetta sem einhver skilaboð.
„Nei ég hef ekki skrifað eða sagt neitt sem ætti að kalla fram þessi viðbrögð. Ég hef verið með kynfræðslu í skólunum en það hefur verið lítið af því að undanförnu út af prófum,“ segir Sigga Dögg sem getur engan veginn látið detta sér í hug hver gæti hafa verið þarna að verki.
Ekki fast á hurðinni
„Á þetta að vera fyndið? Ég átta mig bara ekki á því. Hvort þetta hafi verið barn, unglingur eða einhver fullorðinn, ég bara hef ekki hugmynd,“ segir Sigga Dögg en eiginmaður hennar var að þrífa typpamyndina af útidyrahurðinni þegar blaðamaður ræddi við hana.
„Já hann er að reyna að þrífa þetta af. Næst þetta af?“ kallaði Sigga Dögg í eiginmann sinn sem svaraði játandi um hæl.
„Þetta næst af, það er gott.“











