Birgitta sannfærði Anonymous um að hætta netárásum á Ísland

Birgitta segist hafa náð að sannfæra meðlimi Anonymous um að hætta netárásum á Ísland. Hún setti upp Anonymous-grímuna og fjallaði um hópinn í þættinum Krakkafréttir á RÚV í lok nóvember.
Anonymous Birgitta segist hafa náð að sannfæra meðlimi Anonymous um að hætta netárásum á Ísland. Hún setti upp Anonymous-grímuna og fjallaði um hópinn í þættinum Krakkafréttir á RÚV í lok nóvember.

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segist hafa sannfært meðlimi Anonymous um að hætta netárásum á Ísland. Eins og greint hefur verið frá að undanförnu hefur Anonymous-hópurinn gert fjölmargar árásir á íslenskar vefsíður á undanförnum vikum vegna stuðnings Íslands við hvalveiðar.

Meðal þeirra vefsíðna sem hópurinn tók niður á dögunum má nefna mbl.is, visiticeland.com og heimasíður íslenskra ráðuneyta. Birgitta segir í umræðum á Pírataspjallinu á Facebook að hún hafi beitt sér fyrir því að þessum árásum yrði hætt.

„Anon eru margir ólíkir hópar sem þekkjast ekkert innbyrðis. Mér tókst að sannfæra dýravinahóp Anon um að hætta þessum árásum á Ísland í twitter spjalli um daginn, sagði þeim að þessar aðgerðir myndu hafa þveröfug áhrif en þau áhrif sem þau voru að kalla eftir. Svo virðist sem þau hafi tekið rökum,“ segir Birgitta í umræðum um Anonymous-hópinn sem Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi þingmaður Samfylkingar var upphafsmaður að.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.