Auglýsing
Meðlimum Bandidos vísað úr landi
Útlendingastofnun vísaði fjórum mönnum úr landi í dag en þeir voru sagðir meðlimir í norrænu vélhjólagengi
13:48 › 7. nóvember 2015
Meðlimir Bandidos Fjórum mönnum var vísað úr landi í gær grunaðir um að vera meðlimir í norrænum vélhjólasamtökum.
Útlendingastofnun vísaði fjórum mönnum úr landi sem eru taldi vera meðlimir í vélhjólaklúbbi á Norðurlöndum í gær. Mennirnir, sem voru í mótorhjólagenginu Bandidos, samkvæmt heimildum DV, fóru af landi brott í dag.
Mennirnir komu með flugi til Keflavíkurflugvallar í gær, en ekki fengust upplýsingar um það frá hvaða landi mennirnir væru.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu á Suðurnesjum var mönnunum vísað úr landi á grundvelli allsherjarreglu, en fjölmörgum meðlimum vélhjólasamtaka hefur verið vísað úr landi á síðustu árum.
Auglýsing
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.











