Lögreglan varar við nasistasýru: „Stórhættulegir sjálfum sér og öðrum“

Sýrutöflur komnar í umferð á Íslandi með mynd af hakakrossinum – Lögreglumenn varaðir við því að handleika töfluna

Lögreglan varar við þessum töflum.
Hættulegir hakakrossar Lögreglan varar við þessum töflum.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum varar við LSD-töflu sem komin er í umferð á íslenskum fíkniefnamarkaði en lögreglumenn hafa miklar áhyggjur af neyslu töflunnar og eru þeir meðal annars varaðir við að handleika þær.

Samkvæmt heimildum DV deila lögreglumenn á Suðurnesjum þessum áhyggjum með öðrum lögreglumönnum á landinu.

Lögreglumenn í Reykjavík hafa til að mynda séð afleiðingar á neyslu töflunnar á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Eftir því sem DV kemst næst hafa fjölmargir verið fluttir á sjúkrahús í kjölfar neyslu á töflunni.

„Taflan veldur miklum áhrifum, komið hafa upp mörg mál hjá lögreglu þar sem aðilar sem hafa neytt töflunar eru gjörsamlega út úr heiminum og stórhættulegir sjálfum sér og öðrum. Lögreglumenn sem og aðrir eru varaðir við því að koma við töfluna með berum höndum líkt og önnur fíkniefni en hættan felst í því að ef LSD er handleikið með berum höndum þá getur efnið smitast í gegnum húðina og viðkomandi getur fundið til áhrifa,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Svo virðist sem að taflan sé stundum markaðssett sem e-tafla með virka efninu MDMA en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekkert MDMA í töflunni – aðeins LSD eða sýra. Hægt er að greina þessa töflu frá öðrum töflum því búið er að stimpla mynd af hakakrossinum á hana að utanverðu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.