Íslendingur í gæsluvarðhaldi: Grunaður um að hafa misþyrmt tveggja ára barni

Kom með barnið á sjúkrahús í Stavanger í Noregi – Læknar hringdu á lögreglu því lýsingar mannsins komu ekki heim og saman við áverka barnsins – Handleggsbrotið og með áverka um allan líkamann
Maðurinn í gæsluvarðhaldi Grunaður um að hafa veitt tveggja ára barni alvarlega áverka.

Lögreglan í Stavanger í Noregi handtók á föstudaginn 23 ára gamlan Íslending sem grunaður er um að hafa veitt tveggja ára barni alvarlega áverka. Maðurinn kom sjálfur með barnið á sjúkrahús en samkvæmt heimildum DV hafði honum verið treyst fyrir því að passa barnið á meðan móðir þess, sem er íslensk, sótti vinnu. Maðurinn situr nú í gæsluvarðhaldi.

DV hefur í morgun unnið náið með blaðamönnum Aftenbladet en málið þykir mjög óhugnanlegt í Noregi þar sem áverkar barnsins voru alvarlegir og útskýringar mannsins ótrúverðugar.

Áverkar út um allan líkama

Samkvæmt heimildum DV voru það læknar á sjúkrahúsinu í Stavanger sem hringdu á lögregluna. Maðurinn hafði þá mætt með barnið á sjúkrahús og útskýrt það fyrir læknum að það hefði dottið tvisvar sinnum á hurðarkarm og einu sinni aftur fyrir sig með þeim afleiðingum að það handleggsbrotnaði, hlaut alvarlega áverka á höfði, marðist á hrygg, hnjám og rist.

Lýsingar mannsins þóttu ótrúverðugar og komu ekki heim og saman við áverka barnsins. Maðurinn var í kjölfarið handtekinn af lögreglu og situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa veitt barninu áverkana. Barnið er enn á sjúkrahúsi og ekki útlit fyrir að það verði útskrifað fyrr en í lok vikunnar.

Ofbeldið talið hafa átt sér stað á heimili barnsins

Eftir því sem DV kemst næst hafði maðurinn verið í sambandi með móður barnsins í skamman tíma og var tiltölulega ný fluttur inn á heimilið þegar málið kom upp núna á föstudaginn. Lögreglan hefur meðal annars rannsakað heimili barnsins sem er í um það bil 30 mínútna akstursfjarlægð frá Stavanger, í litlum bæ sem heitir Lye.

Lögreglan telur árásina hafa átt sér stað á heimili barnsins í Lye í sveitarfélaginu Time, í um það bil 30 mínútna akstursfjarlægð frá Stavanger.
Búa í Lye Lögreglan telur árásina hafa átt sér stað á heimili barnsins í Lye í sveitarfélaginu Time, í um það bil 30 mínútna akstursfjarlægð frá Stavanger.
Mynd: Googlemaps

Lögreglan í Stavanger hefur ekki gefið miklar upplýsingar um málið en Unni Byberg Malmin, saksóknari lögreglunnar, staðfesti í samtali við Aftenbladet að maðurinn hefði verið handtekinn á föstudaginn, grunaður um að hafa veitt barninu umrædda áverka. Þá segir hún einnig að lögreglan hafi farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum þar sem það þótti líklegt að hann myndi annaðhvort reyna að flýja eða eyðileggja sönnunargögn í málinu. Það var síðan á mánudaginn sem hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.

Fjöldi lögreglumanna vinnur að málinu

Unni Byberg segir lögreglu hafa ástæðu til að ætla að ofbeldið hafi átt sér stað bæði inni á heimili barnsins og fyrir utan það. Hin meinta misþyrming er litin mjög alvarlegum augum í Noregi en samkvæmt Unni Byberg mun stór hluti lögregluliðsins í Stavanger einbeita sér eingöngu að rannsókn málsins.

„Við höfum áhuga á upplýsingum sem fólk þarna úti gæti gefið okkur og myndi nýtast við rannsókn málsins. Þeir sem vilja koma þeim upplýsingum til lögreglu er bent á að hafa samband við stjórnstöð lögreglunnar.“

Þá sagði Unni Byberg að barnið hefði það gott miðað við aðstæður.

Þekktur ofbeldismaður úr Reykjavík

Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi er þekktur ofbeldismaður og var síðast dæmdur til refsingar hér á landi í lok árs 2012 fyrir líkamsárás. Þá var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökuréttindum ævilangt. Lögreglan í Noregi segir manninn ekki hafa hlotið dóm þar í landi en í samtali við Aftenbladet segir lögfræðingur lögreglunnar að nú sé verið að hafa samband við íslensk lögregluyfirvöld til þess að fá upplýsingar um afbrotaferil hans hér á landi.

DV mun halda áfram að fylgjast með málinu og er það unnið í nánu samstarfi við Aftenbladet.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.