Með einkaflugvél í startholunum fyrir Snowden

„Allt til reiðu hjá okkur og vélin gæti farið í loftið á morgun“

Þota í eigu fyrirtækis í Kína hefur verið tekin á leigu af aðilum tengdum Wikileaks til að flytja uppljóstrarann, Edward Snowden til Íslands. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2, að sögn bíður hópurinn viðbragða frá innanríkisráðherra um hvort Snowden fái pólitískt hæli hérlendis. „Allt til reiðu hjá okkur og vélin gæti farið í loftið á morgun“, segir fulltrúi frá Wikileaks.

Edward Snowden er fyrrverandi starfsmaður bandarísku stofnunarinnar NSA og er sá sem afhenti breska dagblaðinu The Guardian gögn um njósnir bandarískra yfirvalda á netnotkun í heiminum.

Í gegnum Kristinn Hrafnsson, talsmanns Wikileaks, lýsti Snowden yfir áhuga á að fá pólitískt hæli á Íslandi og ef ráðherra tekur vel í beiðni Snowden er ekkert því til fyrirstöðu að hann komi til Íslands á næstu dögum.

„Við erum í raun og veru bara búnir að því sem þarf að gera okkar megin. Það er búið að útvega flugvél og öll "logistic" eru klár. Nú bíðum við bara eftir því hvað ríkisstjórnin vill gera,“ segir Ólafur Vignir Sigurvinsson, fulltrúi Wikileaks og stofnandi DataCell. Ólafur Vignir segir ólíklegt er að Snowden komi til landsins áður en jákvæð svör berast þaðan.
„Nei, ég held að það sé bara kjánalegt að fara með manninn hingað ef hann verður framseldur um leið til Bandaríkjanna. Þá er hann betur settur þar sem hann er. Við viljum ekki bera ábyrgð á því að framselja hann í hendur Bandaríkjamanna.“

Kostnaðurinn er umtalsverður, en beinn kostnaður vegna þotunnar er um 30 milljónir, en líkur er að heildar kostnaður verði að minnsta kosti 40 milljónir króna. Framtakið er fjármagnað með framlögum einstaklinga en Wikileaks hefur milligöngu um málið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.