Kort af staðnum þar sem líkið fannst.
Lögreglan í Follo í Noregi fann í gær lík í skóglendi. Óslóarlögreglan hefur tekið við rannsókn málsins. Ekki er vitað hvort líkfundurinn tengist hvarfi hinnar sextán ára gömlu Sigrid Giskegjerde Schjetne, sem hvarf sporlaust frá heimili sínu í Ósló þann 5. ágúst síðastliðinn. Umfangsmikil leit hefur verið gerð að Sigrid sem hefur þó ekki borið árangur. Norska dagblaðið VG greinir frá.
Höfðu áður leitað á svæðinu
Østlandets Blad greinir frá því að tveir menn hafi verið handteknir í tengslum við málið. Segir blaðið að mennirnir séu á sjötugsaldri og fertugsaldri.
Norska lögreglan hefur gefið litlar upplýsingar um málið en beðið er eftir bráðabirgðaniðurstöðum úr krufningu. Engar upplýsingar hafa verið gefnar út um hvort líkið sem fannst sé af kvenmanni eða karlmanni.
Líkið fannst á iðnaðarsvæði í Kolbotn sem er skammt frá Ósló. Leitarmenn höfðu leitað 200 metrum frá þeim stað þar sem líkið fannst.
Í textaskilaboðum sem lögfræðingur fjölskyldu Sigridar sendi á VG kemur fram að foreldrunum hafi verið tilkynnt um líkfundinn. Norskir fjölmiðlar hafa leitt að því líkur að líkið sé af Sigrid.
Farsími, skór og sokkur fundust
Stúlkan hvarf í úthverfinu Østensjø í Osló, en farsími hennar, skór og einn sokkur fundust í um þrjú hundruð metra fjarlægð frá heimili hennar. Leitarhundum hefur gengið illa að rekja slóð hennar og telur lögregla að Sigrid hafi jafnvel verið neydd til að setjast upp í bifreið sem hafi svo keyrt af vettvangi. Hundarnir geta rekið slóð hennar að leikskóla í nágrenni við heimili hennar, en þar endar slóðin.
Kafarar, leitarhundar, þyrlur, lögreglumenn og sjálfboðaliðar hafa verið notaðir við leitina að Sigrid. Fleiri hundruð manns hafa tekið þátt í leitinni, bæði sjálfboðaliðar og lögreglumenn. Þá höfðu einnig mörghundruð ábendingar borist lögreglunni. Fjölskylda hennar hefur lýst yfir þakklæti í garð þeirra sem komið hafa að leitinni.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013