Maðurinn sem féll í Jökulsá látinn

Á fjórða tug manna tóku þátt í leitinni

Maðurinn sem féll í Jökulsá á Lóni í gærkvöldi fannst látinn um miðnætti í nótt eftir rúmlega fjögurra tíma leit. Maðurinn var í hestaferð ásamt um tuttugu manna hópi þegar hann féll í ána en ekki er vitað um tildrög slyssins að svo stöddu.

Var kallað eftir aðstoð til að leita að manninum skömmu eftir að hann féll í ána og aðstoðaði þyrla Landhelgisgæslunnar björgunarfólk við leitina. Lögreglan á Höfn í í Hornafirði segir hinn látna hafa verið Íslending á fimmtugsaldri en á fjórða tug manna tóku þátt í leitinni.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.