„Hann er óþverri“

Móðir fórnarlambs Ásgeirs Inga segir það ekki koma sér á óvart að hann hafi verið dæmdur aftur

„Ég get ekki sagt að þetta komi mér neitt á óvart, ég hef því miður búist við að heyra af einhverju svona. Þessi maður er ofbeldismaður að eðlisfari. Hann er óþverri,“ segir Gerður Berndsen, móðir Áslaugar Perlu Kristjónsdóttur, sem Ásgeir Ingi Ásgeirsson myrti á hrottalegan hátt árið 2000.

DV sagði frá því á föstudag að Ásgeir Ingi hefði á mánudaginn í síðustu viku verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 12 mánaða fangelsi fyrir fólskulega líkamsárás á sambýliskonu sína. Árásin átti sér stað á heimili þeirra í miðbæ Reykjavíkur, 21. febrúar 2011. Önnur kona segir í bréfi til Gerðar að Ásgeir hafi ráðist á sig árið 1998 á heimili sínu. Það var þó aldrei dæmt í því máli né gefin út ákæra. Í bréfi sem konan sendi Gerði eftir dauða Áslaugar Perlu, lýsir hún því hvernig hann réðst á sig, ógnaði og píndi.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.