Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
13:20 › 21. september 2012
Hitaveiturör féll á mann í fyrradag með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni varð slysið í Svartsengi þar sem verið var að hífa rörið á vagn með hjólaskóflu.
Reipi voru bundið í báða enda þess og því lyft með þeim hætti. Tveir menn voru síðan við sitt hvorn enda þess til að stjórna ferðinni. Annað reipið slitnaði og rörið, sem er um tvö tonn að þyngd og sextán metra langt, lenti á öðrum manninum og braut upphandlegg hans. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala. Báðir mennirnir voru með öryggishjálm og í öryggisskóm

Hemmi Gunn fallinn frá