Tveggja tonna hitaveiturör féll á mann

Hitaveiturör féll á mann í fyrradag á Suðurnesjum með þeim afleiðingum að maðurinn handleggsbrotnaði.

Slysið varð í Svartsengi þar sem verið var að hífa rörið á vagn með hjólaskóflu. Reipi voru bundið í báða enda þess og því lyft með þeim hætti. Tveir menn voru síðan við sitt hvorn enda þess til að stjórna ferðinni.

Annað reipið slitnaði og rörið, sem er um tvö tonn að þyngd og sextán metra langt, lenti á öðrum manninum og braut upphandlegg hans. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala.

Báðir mennirnir voru með öryggishjálm og í öryggisskóm segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.