Ekki er óalgengt að ungmenni reyni að verða sér úti um áfengi, jafnvel þó þau hafi hvorki þroska né aldur til að drekka lögum samkvæmt. Nokkur bandarísk ungmenni hafa fundið leiðir til að snúa á kerfið, en til þess notfæra þau sér uppboðssíðuna Ebay. Í fjölda ára hafa ungmennin notað fölsuð skilríki til þess að kaupa áfengi, en strangari lög og reglur um skilríki og sölu á áfengi hafa gert það enn erfiðara. Bandaríkjamenn þurfa að vera 21 árs til þess að mega kaupa áfengi.
Ungmennin notfæra sér það að á Ebay er enginn spurður um aldur og taka seljendur áfengisins því sem föstu að sá sem kaupir sé orðin 21 árs, enda bannað að bjóða í veigarnar annars. Ebay segist banna sölu á áfengi, en þó eru undantekningar frá þeirri reglu.
Sem dæmi má nefna að sjaldgæf vín eru gjarnan boðin upp á vefnum, sem og sérstakar hátíðarútgáfur af hinum ýmsu tegundum.
13 ára piltur sýndi sjónvarpsþættinum 20/20 hversu auðvelt það er að nálgast áfengi og ekki nóg með það- hann fékk það sent heim að dyrum. Pilturinn, sem heitir Xander, leiddi blaðamann þáttarins í allan sannleik um það og sýndi honum nákvæmlega hvernig hann kæmist framhjá lögum og reglum. „Það eina sem ég þurfti að gera var að skrifa vodka í leitarstikuna og ýta á einn takka og þetta var sent heim til mín,“ segir Xander, en á fimm vikum keypti hann fimm flöskur af vodka.
Ebay tekur fram að seljendur verði að taka ábyrgð á sínum vörum. Aðeins einn sölumaður á Ebay vildi að Xander sendi honum ljósrit eða afrit af skilríkjum sínum. Aðrir tóku það fram í uppboðsreglum sínum að viðkomandi yrði að vera 21 árs og segja skýrt: „Ekki bjóða í vöruna ef þú ert ekki 21 árs,“ en gerðu ekkert til að tryggja að svo væri. Einn seljandinn skrifar: „Með því að bjóða í vöruna staðfestir þú að þú hafir náð löglegum aldri til að kaupa þessa vöru.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013